HBO kaupir Sólskinsdrenginn 5. desember 2009 06:30 Í stjörnufans.Sólskinsdrengurinn Keli heillar alla upp úr skónum, hvar sem hann stígur niður fæti. Nú hefur HBO keypt heimildarmyndina og ætlar sér stóra hluti með hana. Sjónvarpskonan Rosie O’Donnell hafði milligöngu um samninginn.
Bandaríska sjónvarpsfyrirtækið HBO hefur keypt dreifingarréttinn að íslensku heimildarmyndinni Sólskinsdrengnum eftir Friðrik Þór Friðriksson. Myndin verður frumsýnd á einni af sjónvarpsrásum fyrirtækisins en HBO er eitt stærsta sjónvarpsfyrirtæki Bandaríkjanna, tilheyrir Warner-fjölmiðlaveldinu og nær til yfir 38 milljóna áskrifenda. Margrét var auðvitað í skýjunum þegar Fréttablaðið náði tali af henni en það var fyrir tilstilli Rosie O’Donnell, sjónvarpskonunnar frægu, að hjólin fóru að snúast fyrir alvöru og HBO-samningurinn komst í höfn. Að sögn Margrétar kom hún á fundi við æðstu menn HBO en slíkt er víst nánast ógjörningur. „Rosie sá myndina og heillaðist algjörlega af henni. Þetta er náttúrlega ótrúlegt en Rosie er mjög stórt nafn hérna úti,“ segir Margrét sem sjálf hafði ekki hugmynd um hvers slags völd og áhrif sjónvarpskonan hefur. HBO stefnir á að senda Sólskinsdrenginn í Óskarsforvalið fyrir þetta ár en slíkt kostar mikla peninga. Þeir gera sér vonir um að myndin kunni hljóta náð fyrir augum Akademíunnar. Margrét segir að bæði Rosie og Kate Winslet, sem talar inn á ensku útgáfuna af myndinni, ætli að leggja sitt á vogarskálarnar. „Þær vilja ljá þessum einhverfu börnum rödd og styðja við bakið á myndinni þegar hún verður frumsýnd.“ Sólskinsdrengurinn segir sögu Kela sem er einhverfur og baráttu móður hans, Margrétar, við að skilja bæði sjúkdóminn og þann hulda heim sem einhverfir búa við.- fgg
Mest lesið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ Tónlist Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Tónlist Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Lífið „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Fleiri fréttir Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Sjá meira