Mezzoforte til Suður-Afríku 23. nóvember 2009 08:00 Hljómsveitinni Mezzoforte hefur verið boðið að spila í Suður-Afríku í fyrsta sinn.
Hljómsveitinni Mezzoforte hefur verið boðið að spila á djasshátíð í Höfðaborg í Suður-Afríku næsta vor. Þetta verður í fyrsta sinn sem sveitin spilar í heimsálfunni. „Okkur bauðst að fara til Suður-Afríku árið 1984 en þá var það ekki pólitískt rétt að fara þangað. Þá var aðskilnaðarstefnan í gangi og það fór enginn til Suður-Afríku. Það verður gaman að koma þangað,“ segir hljómborðsleikarinn Eyþór Gunnarsson. Hann segist ekki vita hvort Mezzoforte eigi stóran aðdáendahóp í landinu. „Við eigum aðdáendahópa mjög víða í heiminum en ég veit ekki hvernig það er í Suður-Afríku.“ Eftir að tónleikarnir þar í landi verða afstaðnir í apríl á Mezzoforte aðeins eftir að spila í einni heimsálfu til viðbótar, Ameríku. Þangað hefur hljómsveitin aldrei reynt að komast að neinu ráði. „Við vitum að það er ekkert auðvelt að komast inn á þann markað. Menn þurfa að leggja á sig grunnfórnarvinnu til að brjótast þar inn,“ segir Eyþór. „Þegar leikurinn stóð sem hæst hjá okkur var nóg að gera annars staðar en það væri gaman að fá að spila þar einhvern tímann ef tækifærið gefst.“ Eyþór var á leiðinni til Búdapest í Ungverjalandi ásamt félögum sínum þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Þar spilar Mezzoforte annað kvöld. Á mánudaginn spilar sveitin síðan í Rúmeníu og á miðvikudag í Búlgaríu. „Við skreppum alltaf af og til. Þetta hefur gengið mjög vel.“ - fb
Mest lesið „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Lífið Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lífið Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Lífið Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum Tónlist Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Lífið Fleiri fréttir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Sjá meira