Innlent

Nokkrir bindislausir á þingi

Unnur Brá Konráðsdóttir, Þór Saari og Guðbjartur Hannesson voru öll bindislaus í þinginu í gær.
fréttablaðið/gva
Unnur Brá Konráðsdóttir, Þór Saari og Guðbjartur Hannesson voru öll bindislaus í þinginu í gær. fréttablaðið/gva

„Ég hef tekið eftir því að flestir eru enn þá með hálstau og ég er mjög ánægð með það. Persónulega finnst mér þingmennirnir flottari með bindi, en aðalatriðið er að þeir séu vel til hafðir. Og það eru þeir allir. Þeir eru glæsilegir á að líta úr forsetastólnum,“ segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Bindisskylda þingmanna var afnumin þegar þinghald hófst að loknum alþingiskosningum.

Ásta Ragnheiður tók við stöðu forseta Alþingis á sama tíma og er því í betri aðstöðu en flestir til að vega og meta breytingarnar. „Ég hef tekið eftir nokkrum þingmönnum sem kjósa að nýta sér afnám bindisskyldunnar, og það eru menn úr öllum flokkum. Mér hefur alltaf fundist að ákveðin virðing fyrir starfinu felist í því að klæða sig upp, en fólki er auðvitað í sjálfsvald sett hvernig það hefur þessa hluti.“

Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, sem barðist fyrir afnámi bindisskyldunnar, segir marga hafa komið til sín og þakkað sér fyrir. „Sex þingmenn af fimmtán í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra voru bindislausir. Það voru reyndar konur, en við gætum fyllsta jafnréttis og teljum alla með. Í þinginu á þriðjudag taldi ég fjóra eða fimm bindislausa karlmenn. Ég er reyndar hættur að velta þessu fyrir mér, en umræðan var svo leiðinleg að ég gaf mér tíma til að telja,“ segir Þór og vísar til umræðu um eignaumsýslufélag ríkisins í þinginu. - kg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×