Innlent

Fyrningarleiðin sögð glapræði

Á Bíldudal
Byggðakvótinn er grunnur atvinnulífsins segir bæjarráðið.
Á Bíldudal Byggðakvótinn er grunnur atvinnulífsins segir bæjarráðið.

Bæjarstjórn Vesturbyggðar segist hafa þungar áhyggjur af óvissu sem komin sé upp í sjávarútvegsmálum með hugmyndum um fyrningarleið og um að fella niður byggðakvóta.

„Ekkert er mikilvægara en að skapa stöðugleika þegar efnahagslífið er rústir einar og sjávarútvegurinn sú grunnstoð sem þjóðin byggir framtíðina á. Glapræði er að veikja fyrirtæki í sjávarútvegi þar sem þau heyja sína baráttu ekki einungis innanlands heldur einnig á mörkuðum erlendis,“ segir í ályktun bæjarstjórnarinnar. - gar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×