Málflutningi lokið í máli Jóns Ásgeirs 8. janúar 2009 11:06 Jón Ásgeir Jóhannesson.
Fyrir stundu lauk málflutningi í Héraðsdómi Reykjavíkur í máli sem snýst um kröfu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um að úrskurðað verði að rannsóknin sem fram hefur farið á skattamálinu svokallaða verði dæmd ólögmæt. Gísli Guðni Hall sem flytur málið fyrir Gest Jónsson lögmann Jóns Ásgeirs segir að dómari hafi ekki gefið upp hvenær niðurstöðu sé að vænta í lok þinghalds, en býst við að úrskurður komi fljótlega. Gísli segir að krafa þeirra sé byggð á því að drátturinn á rannsókninni hafi verið orðinn óheyrilegur og að ekki fáist séð að settur Ríkislögreglustjóri hafi lagt sjálfstætt mat á rannsóknina áður en hann var settur heldur falið öðrum að vinna verkið í sínu umboði. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra setti Rúnar Guðjónsson sýslumann í Reykjavík til þess að vera Ríkislögreglustjóri í meintum skattalagabrotum Jóns Ásgeirs og öðrum tengdum Baugi. Hæstiréttur hafði áður komist að því að Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri skyldi víkja sæti við rannsókn málsins þar sem hann hefði með tilteknum ummælum sínum í fjölmiðlum gert sig vanhæfan til að stjórna rannsókninni. Ef rannsóknin verður ekki úrskurðuð ólögmæt er varakrafa Jóns Ásgeirs sú Helga Magnúsi Gunnarssyni saksóknara efnahagsbrota, sem sækir málið, verði vikið sæti vegna vanhæfis. „Það er byggt á því að hann sé vitni í málinu þar sem hann hefur þegar vitnað í málinu og er þannig viðriðinn það. Framganga hans hefur einnig verið með þeim hætti að við teljum það leiða til vanhæfis hafi hann þá einhverntíma verið hæfur," segir Gísli. Eins og fyrr segir liggur ekki fyrir hvenær niðrustaða í þessari kröfu Jóns Ásgeirs liggur fyrir en Gísli býst við að það verði fljótlega. „Þeir eru yfirleitt snöggir að úrskurða í málum af þessu tagi."
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira