Viðbúnaður á Landspítalanum færður á virkjunarstig 29. október 2009 12:19
Viðbúnaður á Landspítala var í dag færður á svokallað virkjunarstig, samkvæmt viðbragðsáætlun spítalans, vegna aukins álags af völdum inflúensufaraldursins samkvæmt tilkynningu frá Landlæknaembættinu. Þetta er næstefsta stig af fjórum sem skilgreint er í áætluninni; efst er neyðarstig. Á „virkjunarstigi" viðbúnaðar gæti þurft að draga úr innlögnum sjúklinga og fresta þeim aðgerðum sem unnt er að fresta á Landspítalanum. Á Landspítala lágu þrjátíu og níu inflúensusjúklingar um hádegi í gær, þar af níu á gjörgæsludeild. Tólf inflúensusjúklingar voru lagðir inn á einum sólarhring vegna inflúensunnar en tveir voru útskrifaðir á sama tíma. Meira reyndi í gær á starfsemi Landspítala vegna inflúensunnar en nokkru sinni fyrr frá því faraldurinn hófst. Sjúklingar á gjörgæsludeildum spítalans eru á aldrinum tveggja ára til sjötíu og níu ára. Alls hafa 6.609 manns greinst með inflúensueinkenni hérlendis. Útbreiðsla faraldursins hefur ekki aukist á höfuðborgarsvæðinu upp á síðkastið en veikin breiðist út á landsbyggðinni. Svo segir í tilkynningu: Frá 23. september 2009 hafa yfir hundrað manns verið lagðir inn á sjúkrahús hérlendis með grun um inflúensu eða staðfesta inflúensu A(H1N1)v 2009, þar af tæplega níutíu manns á Landspítala. Af þeim eru þrír af hverjum fjórum með undirliggjandi sjúkdóma. Frá októberbyrjun hafa fjórtán sjúklingar verið lagðir inn á gjörgæsludeildir með staðfesta inflúensu eða gruns um hana. Í gær voru alls tíu á gjörgæsludeildum, þar af einn á Akureyri og níu á Landspítala. Meðalaldur þeirra er um fimmtíu ár og aldursbilið frá tveggja ára til sjötíu og níu ára. Fólk á öllum aldri greinist með sjúkdóminn í öllum sóttvarnaumdæmum landsins. Flestir eru fimmtán til nítján ára og unnt er að greina hlutfallslega fjölgun sjúkdómstilvika barna og ungmenna á leik- og grunnskólaaldri miðað við aldursdreifinguna í júlí og ágúst í sumar. Inflúensutilfellum fækkaði nokkuð í aldurshópnum tuttugu til þrjátíu ára og fækkaði verulega hjá þeim sem eru sextugir og eldri. Þetta kann hins vegar að breytast þegar líður á faraldurinn.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Sjá meira