Ísland háð AGS hálfu ári lengur en til stóð 29. október 2009 03:45 Gylfi Magnússon sagðist ekki búast við því að áfanginn hefði mikil áhrif á gengi krónunnar strax, enda hefði hann verið viðbúinn.Fréttablaðið/vilhelm
Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) samþykkti á fundi sínum síðdegis í gær aðra endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands, sem tafist hefur um átta mánuði. Íslensk stjórnvöld mega því eiga von á næstu lánafyrirgreiðslu AGS á næstunni. Tafirnar hafa það í för með sér að afgangi áætlunarinnar verður í raun hliðrað um nokkra mánuði, og samstarfið framlengt frá nóvember 2010 fram í maí 2011. Lánið frá AGS er 167,5 milljónir Bandaríkjadala, eða um 21 milljarður íslenskra króna. Þá er einnig að vænta viðbótarlána frá Norðurlöndunum sem voru háð endurskoðuninni, upp á 625 milljónir dala, eða um 78 milljarða króna. Heildarlánið sem Ísland fær á næstunni er því rétt tæplega 100 milljarðar. Til þessa hefur það helst verið Icesave-málið sem staðið hefur í vegi fyrir því að endurskoðunin yrði samþykkt. Breytingar á Icesave-lögunum hafa hins vegar enn ekki verið samþykktar á Alþingi og málinu því enn ólokið. Að sögn Gylfa Magnússonar efnahags- og viðskiptaráðherra hefur stjórn AGS nú fulla trú á að frumvarpið verði samþykkt og tók ákvörðun sína í trausti orða íslenskra stjórnvalda þar um. Til að endurskoðunin gengi í gegn þurftu stjórnvöld að fá undanþágu frá nokkrum atriðum sem kveðið er á um í samningnum við AGS. Kröfur sem settar voru um lánsfjárjöfnuð ríkissjóðs við lok desember 2008 stóðust ekki vegna þess að hrunið reyndist kostnaðarsamara en við var búist og gjaldeyrisforði á sama tíma var undir viðmiðunarmörkum AGS. Einnig þurfti undanþágu vegna þess að herða þurfti á gjaldeyrishöftum fyrir skemmstu til að koma í veg fyrir leka og vegna þess að endurfjármögnun bankanna er enn ólokið, en henni á að ljúka í nóvember. Stjórnvöld vonast til þess að áfanginn auki traust alþjóðlegra fjármálamarkaða á Íslandi, dragi úr vaxtakostnaði, auðveldi Seðlabanka Íslands að lækka stýrivexti og afnema gjaldeyrishöft. Gylfi segir að fyrsti áfangi í afnámi haftanna, það er að opna fyrir innstreymi erlends fjármagns, taki gildi nú fyrir helgi. Næsta endurskoðun er áætluð í desember. Þá berast einnig næstu lán frá Norðurlöndunum og Póllandi.stigur@frettabladid.is
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Innlent Fleiri fréttir Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Sjá meira