Jakinn 25 ára gamall 29. október 2009 10:22
Tuttugu og fimm ár eru um þessar mundir liðin frá því að Jakinn, fyrsti gámakrani Eimskipafélagsins í Sundahöfn, var vígður við hátíðlega athöfn samkvæmt tilkynningu frá Eimskip. Með tilkomu Jakans tók gámavæðing íslenskra skipaflutninga mikið stökk. Gámakranar Eimskips eru nú fjórir, þar af eru þrír staðsettir á Íslandi og einn í Færeyjum. Árið 1996 var öðrum gámakrana, Jarlinum, bætt í flotann og sá krani endurnýjaður 2004. Jötunn var síðan vígður árið 2007 en þá var Jarlinn fluttur til Reyðarfjarðar vegna stóraukinna flutninga þar í tengslum við álver Alcoa-Fjarðaáls. Jakinn er 53 metra hár, vegur 450 tonn og hefur híft tæplega eina og hálfa milljón gáma á þessum árum, eða sem nemur tæplega fimm gámum á hvern núlifandi Íslending. Ákvörðun um að reisa kranann var tekin í lok ársins 1983, en stjórnendur Eimskips töldu þessa miklu fjárfestingu vera eðlilegt framhald þeirrar uppbyggingar sem átt hafði sér stað á Sundahafnarsvæðinu, auk þess sem gámakrani jók jafnt hagkvæmni sem öryggi við uppskipun gáma. Kraninn var síðan reistur sumarið 1984 og var ákveðið að hann skyldi hljóta nafnið Jakinn. Í frétt Morgunblaðsins um nafngiftina sagði meðal annars árið 1984 : „Hlýtur það að teljast réttnefni því með krananum er hægt að lyfta 32,5 tonnum í einum. Reiknað er með að full afkastageta verði 20-30 gámar á klukkustund." Með nafninu var jafnframt verið að heiðra Guðmund J. Guðmundsson, fyrrum formann Dagsbrúnar, sem áratugum saman hafði verið í forystu fyrir reykvíska hafnarverkamenn. Jakinn hefur þjónað Eimskipafélaginu afar vel í aldarfjórðung og reynst vera mikið happatæki. Lykillinn að þessari góðu endingu er fyrst og fremst afar gott fyrirbyggjandi viðhald í gegnum tíðina. Þá má einnig geta þess að þrír af fjórum núverandi kranastjórum Jakans hafa starfað á honum frá upphafi
Mest lesið Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Innlent Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Innlent Gosmóðan heldur áfram Innlent Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Innlent Blámóðan þyngdi róður slökkviliðsmanna Innlent Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Innlent Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Innlent Trump kærir fjölmiðlaveldi fyrir ærumeiðingar Erlent Fleiri fréttir Blámóðan þyngdi róður slökkviliðsmanna Gosmóðan heldur áfram Sérsveitin kölluð út í miðbæ Akureyrar Mælirinn fullur hjá rekstraraðilum í Grindavík sem ætla í hart Upplifa eitthvað nýtt og eignast nýja vini Grátrana vappaði um í Gunnarsholti Íslenskur fjárhundur á Bessastaði? Krefst fundar með utanríkisráðherra án tafar Mygla fannst á bæjarskrifstofunum Minnihlutinn verði bara að treysta þjóðinni Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal Málsókn Grindvíkinga, heimóttarskapur og heimkoma í beinni Glerflöskur stranglega bannaðar á Þjóðhátíð Dæmdur fyrir að flytja kratom til landsins Fundu fleiri vopn og handtóku suma á skemmtun á Selfossi Fréttu af andláti föður síns eftir að hann var jarðsettur Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði Var ekki að láta undan þrýstingi Grindvíkinga Afleiðingarnar velti á Flokki fólksins Kannast við tannstönglatrixið: „Nágrannavarsla er albesta vörnin“ Kjósendur stjórnarflokkanna „bitrir“ og í basli með sjálfsmyndina Búast við gosmóðu fyrir norðan og vestan næstu daga Sinnaskipti lögreglustjórans og Þorgerður ræðir væntanlegan varnarsamning við ESB Greip inn í rán í Krónunni: Gengu út með „kjaftfullar körfur“ Sagði veikri dóttur sinni að hann vonaði að hún myndi deyja Tíðindalítil nótt á gosstöðvunum „Það er bara ömurlegt að fá þessi tíðindi núna“ Skipulögð skref í átt að aðild án umboðs þjóðarinnar Séríslenskt gervi-Oxy í mikilli dreifingu Grindavík opin fyrir almenning á nýjan leik Sjá meira