Innlent

Togarinn á flot - björgunabáturinn sökk

Frá strandstað.
Frá strandstað.

Togarinn Sóley Sigurjón GK - 200 er laus en meðal björgunabáta var Auðunn frá Keflavík. Hann mun hinsvegar hafa lent sjálfur í hremmingum og sokkið við björgunarstörfin. Þegar rætt var við varðstjóra hjá Landhelgisgæslunni þá sagði hann að engan hefði sakað, hvorki á björgunabátnum né togaranum.

Búið er að senda sjúkrabíl á vettvang þurfi einhver aðhlynningu samkvæmt varðstjóra. Veður er gott og sjórinn er stilltur sem gerir björgunarstörf einfaldari en ella. Aftur á móti sé staðurinn sem strandið varð flókinn vegna þrengsla og grynninga.

Léttbátur frá varðskipinu TÝ fór að skipinu til að athuga hvort vart verði við olíuleka og eins var dýpi mælt á staðnum. Ekki varð vart við olíuleka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×