Búist við að 14% landsmanna fari á vanskilaskrá Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 15. maí 2009 18:30
Fólk í vanskilum fer inn á vanskilaskrá sem getur þýtt snara breytingu á lífsstíl fólks. Búist er við að allt að 14% landsmanna verði komnir á vanskilaskrá þegar botninum verður náð. Fréttastofa ræddi fyrir skömmu við konu, fyrrverandi bankastarfsmann, sem mælir nú göturnar. Þau hjónin keyptu hús fyrir stóra fjölskyldu sína en þegar konan missti vinnuna hættu þau að geta greitt af lánunum. Hún segir greiðsluaðlögun sniðuga , sé fólk tilbúið til að fórna tilveru sinni sem frjálsir þegnar. Fréttastofa kannaði í dag hvað væri hæft í þessari lýsingu enda stór hópur í sömu stöðu. Um síðustu mánaðamót voru um 7% af fjárráða Íslendingum á vanskilaskrá, eða 19.101 einstaklingur, samkvæmt Creditinfo á Íslandi. Aðeins einu sinni áður hafa svo margir verið í vanskilum. Meðal þeirra sem fara inn á vanskilaskrá er fólk sem hefur farið í greiðsluaðlögun vegna lausaskulda og eins fólk sem orðið er gjaldþrota, þ.e. svo lengi sem einhver kröfuhafinn heldur skuldinni lifandi. En hvað þýðir það fyrir tilveru fólks að vera inni á vanskilaskrá? Það getur reynst fólki erfitt að fá kreditkort og yfirdrátt. Þá er býsna algengt í okkar lánadrifna samfélagi að taka út vörur í reikning eða borga með raðgreiðslum. Vanskilaskráning gæti því komið í veg fyrir að maður geti endurnýjað tölvuna eða keypt sér utanlandsferð á raðgreiðslum.Nú eða farið í viðhald á húsnæðinu í gegnum reikning hjá byggingarvöruverslunum. Fyrirtæki og verslanir hafa nefnilega rétt til þess að fletta því upp hvort viðskiptavinur sé á vanskilaskrá. Vanskil tvöfölduðust í finnsku bankakreppunni og voru 12-14% finna komnir á vanskilaskrá þegar kreppan var dýpst.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats Innlent Fleiri fréttir Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Sjá meira