Innlent

Fangi með fíkniefni

Fanga, sem tekinn var með nokkur grömm af hassi á Litla-Hrauni í júlí á síðasta ári, var ekki gerð sérstök refsing vegna málsins í Héraðsdómi Suðurlands. Fangaverðir fundu efnið í klefa fangans, er játaði sök fyrir dómi.

Maðurinn hefur hlotið marga dóma fyrir ýmis brot. Í febrúar var hann dæmdur í átján mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir skjalafals og fleira. Refsingin var ákvörðuð sem hegningarauki. Hassvarslan átti sér stað fyrir þann dóm. Að mati Héraðsdóms Suðurlands hefði hassmálið ekki verið til refsiþyngingar hefði það verið dæmt með skjalafalsinu.- jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×