Strákarnir sæddu ekki kúna 3. nóvember 2009 06:00 Engin sæðing Strákarnir tveir, Auðunn Blöndal og Sverrir Þór, höfðu ekkert með sæðingu kýrinnar að gera. fréttablaðið/Stefán „
Ég fór fram úr mér með því að segja að við hefðum sætt kúna. Ég held að enginn heilbrigður bóndi myndi hafa leyft mönnum eins og mér og Audda að sæða kú. Við Auðunn vorum að sjálfsögðu aðeins hjálparhellur í þessu mikla ferli. Við vorum auðvitað með í að sæða kú. En framkvæmdum ekki athöfnina sjálfa,“ segir Sverrir Þór Sverrisson sjónvarpsmaður. Fréttablaðið greindi frá því í gær að þeir félagar hefðu sætt kú fyrir sjónvarpsþátt sinn, Strákarnir. Fréttin vakti hörð viðbrögð. Sverrir viðurkennir að hann hafi ýkt þetta. Hið rétta í málinu sé að þeir hafi hreinsað út úr endaþarmi kýrinnar eins og lög gera ráð fyrir. „Já, sko, við vorum náttúrlega þarna þrír. Ég, Auðunn og svo sérstakur sáðmaður. Mér fannst í raun magnaðast að sjá hversu mikil vinna er lögð í þetta og hvað það er vandað vel til verks.“ Formaður Dýralækningafélagsins, Guðbjörg Þorvarðardóttir, var harðorð í garð athæfisins þegar Fréttablaðið náði tali af henni. Hún sagði það skipta litlu máli hvort strákarnir hefðu sætt kúna eða ekki. Guðbjörg vonðaðist til að umrætt atriði yrði ekki sýnt en Sverrir Þór og félagar ætla ekki að verða við þeirri bón. „Nei, að sjálfsögðu munum við sýna þetta atriði, við teljum að þarna sé ekki verið að niðurlægja dýrið heldur einfaldlega verið að sýna hvernig svona er gert.“- fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Fleiri fréttir Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Sjá meira