30% með bílalán í erlendri mynt 13. janúar 2009 15:22
Í nýrri skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ASÍ er lánasamsetning íslenskra heimila skoðuð. Þar kemur fram að langflestir eða 62% eru með verðtryggt húsnæðislán í íslenskum krónum. Næst algengust eru bílalán í erlendri mynt en 30% aðspurðra eru með slík lán. Þetta kemur fram í frétt á vef ASÍ. Þar segir ennfremur að 12,5% séu með verðtryggt bílálán í íslenskum krónum, 10% eru með annarskonar lán og tæp 9% eru með húsnæðislán í erlendri mynt. 16% voru ekki með nein lán og er það helst fólk í yngsta og elsta aldurhópnum sem er í þeirri stöðu. „Bílalán í erlendri mynt eru algengari hjá fólki í hærri tekjuhópunum en það vekur athygli að húsnæðislán í erlendri mynt eru hlutfallslega algengari hjá þeim sem eru í námi en þeim sem stunda fulla vinnu. Greiðslubyrði af myntkörfulánum hefur u.þ.b. tvöfaldast á einu ári vegna veikingar krónunnar. KökuritCapacent Gallup Einnig var spurt hversu miklar eða litlar líkur fólk telji á að það geti lent í erfiðleikum við að ná endum saman á næstunni. 54% telja litlar líkur á því en 30% telja miklar líkur á að þeir lendi í erfiðleikum og er það aukning frá því í október þegar 25% svöruðu spurningunni á þann veg. 57% þeirra sem hafa misst vinnuna telja miklar líkur á að þeir geti ekki látið enda ná saman á næstunni. Þá telja 39% þeirra sem hafa tekjur undir 250 þúsundum miklar líkur á að þeir lendi í fjárhagsvandræðum á næstunni."
Mest lesið Sturla Böðvarsson er látinn Innlent Danir standi á krossgötum Erlent Sérsveitaraðgerð á Selfossi Innlent „Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Innlent Segir Kúbu að semja áður en það verður of seint Erlent Gæti slegið í storm og hringvegurinn lokaður Veður Draumur að skipuleggja kvennaverkfall í Þýskalandi Innlent Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Innlent Forsjá varla ákveðin útfrá erfðafræðilegum tengslum Innlent Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Innlent Fleiri fréttir „Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Draumur að skipuleggja kvennaverkfall í Þýskalandi Sturla Böðvarsson er látinn Forsjá varla ákveðin útfrá erfðafræðilegum tengslum Þjóðverjar horfi í ríkari mæli að Norður-Atlantshafi Sérsveitaraðgerð á Selfossi Fleiri stelpur týndar en áður Húsnæðismálin „helsti drifkraftur verðbólgu síðasta áratuginn“ „Evrópusambandið hefur haft sömu viðskiptastefnu og Trump“ Sviminn hvarf eftir aðgerðina og hækjan horfin Banaslys í Rangárþingi Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Bein útsending: Ráðherraskipti á ríkisráðsfundi Fyrsta ár Náttúruverndarstofnunar gekk glimrandi vel Inga vill skóla með aðgreiningu Átti í útistöðum við Frú Ragnheiði Meirihluti hlynntur aðildarviðræðum: „Margt breyst á stuttum tíma“ Meirihluti vill viðræður við ESB og mikið mannfall í Íran Grunaðir um íkveikju í eigin húsnæði Jóhanna Lilja, kartöflubóndi í Þykkvabæ, heiðruð Engin merki um gosóróa í skjálftahrinu á Reykjaneshrygg Inga um nýtt embætti og staða Íslands í alþjóðamálum Barn flutt á slysadeild með áverka eftir flugelda Þrír handteknir vegna gruns um íkveikju Bróðir Dags B „orðlaus“ yfir Kristrúnu „Klikkuð“ norðurljós fyrir utan Selfoss Stofna ný samtök gegn ESB aðild Miklar tafir vegna áreksturs í Vesturbæ Náið fylgst með stöðu mála í Venesúela hjá Útlendingastofnun Utanríkisráðherra Þýskalands fundar með Þorgerði Sjá meira