Ljóðalestur og ostagerð 18. júlí 2009 05:00 Hámenningarlegir Hveðrungarnir er hópur ljóðaunnenda sem hittast mánaðarlega og ræða um menningu og búa til ost. Aron Bergmann er til hægri á myndinni.
Í miðbæ Reykjavíkur er starfandi hámenningarklúbburinn Hveðrungarnir. Félagsmenn hittast mánaðarlega og ræða ljóðlist og bókmenntir, búa til osta og drekka púrtvín. Hámenningarklúbburinn Hveðrungarnir er ljóða- og bókmenntaklúbbur skipaður fjórum snyrtilega klæddum ljóðaunnendum. „Snyrtilegur klæðnaður, vandað málfar og áhugi á bókmenntum eru inntökuskilyrði í Hveðrungana,“ segir Aron Bergmann Magnússon, listamaður, leikmyndahönnuður og einn fjögurra Hveðrunga. „Þetta er hámenningarklúbbur. Við hittumst reglulega og lesum ljóð, ræðum bókmenntir, búum til osta og drekkum púrtvín. Mig vantaði afsökun til að gefa mér tíma til að lesa meira en ég hef gert upp á síðkastið. Maður er duglegri við lesturinn þegar maður er kominn með það markmið að klára eina bók fyrir næsta Hveðrungafund, maður má nefnilega ekki mæta ólesinn á fundi. Það er líka fínt að hittast bara og fá sér vínglas og vera menningarlegur,“ segir Aron um tilurð Hveðrunganna. Með honum í félaginu eru þeir Arnar Fells Gunnarsson, Viðar Kristinsson og Arnar Ingi Viðarsson. Ljóðalesturinn á þó ekki hug þeirra allan því piltarnir búa einnig til sína eigin osta fyrir fundi. „Þetta er kreppuráð fyrir sælkera. Einn úr hópnum hafði lesið sér til um ostagerð og við ákváðum að prófa þetta fyrir einn fundinn og útkoman var æðisleg. Nú tekur við tilraunastarfsemi þar sem við ætlum að þróa okkur frekar í ostagerðinni og svo er einnig á döfinni að prófa brauðbakstur.“ Glæsilegt Heimagerðir ostar í hámenningarklúbbnum Hveðrungunum. Aðspurður segir Aron ostagerð ekki vera flókna. „Maður hitar mjólk, síar mysuna úr og einum og hálfum tíma seinna er maður kominn með fína smurosta, svo saxar maður mismunandi kryddjurtir og blandar við og þá er maður kominn með ljúffengan ost.“ Hveðrungafundir eru haldnir eins oft og tími gefst, stundum nokkrum sinnum í mánuði, og að sögn Arons hafa margir falast eftir inngöngu í hópinn. „Nokkrum vinum okkar fannst hugmyndin skemmtileg og hafa sótt um inngöngu. Umsóknirnar eru til skoðunar enda þurfa menn að uppfylla öll inntökuskilyrðin.“ sara@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira