Hröktust úr landi undan innheimtuhörku Ólafs Ragnars Kristján Már Unnarsson skrifar 13. maí 2009 18:13
Hjón frá Akureyri, sem fluttu til Noregs fyrir fjórtán árum, segja að harðar innheimtuaðgerðir í fjármálaráðherratíð Ólafs Ragnars Grímssonar hafi orðið til þess að þau hröktust úr landi. Þau eru enn svo sár að þau ætla ekki að snúa aftur fyrr en Ólafur Ragnar fer á eftirlaun.Í litlum bæ á eyju norðan Stavangurs hafa þau Auðunn Þorsteinsson og Hildigunnur Ólafsdóttir byggt upp fyrirtækið Smien Verksted, sem selur Norðmönnum stiga og handrið. Þau fluttu frá Íslandi með tvö börn eftir að járnsmíðaverkstæði þeirra á Akureyri fór í þrot.Auðunn segir að fyrirtæki, sem þau unnu fyrir á sínum tíma, hafi farið á hausinn hvert af öðru og þau dregist með. Hið opinbera sýndi þeim enga miskunn þótt síðar kæmi í ljós að þau ættu inni hjá ríkinu. Lögreglan hafi mætt til að loka fyrirtækinu. Þetta hafi verið gert að tilstuðlan Ólafs Ragnars Grímssonar, segir Auðunn.Þau töpuðu öllu sínu. Fínu fyrirtæki, sem gekk vel, bílum og húsi.Auðunn vill meina að Ólafur Ragnar hafi hrakið þau úr landi og vonar að hann fari að koma sér á eftirlaun, áður en þau flytja aftur til Íslands.Saga þeirra verður nánar sögð í Ísland í dag hér á eftir og einnig saga fleiri Íslendinga sem flutt hafa í fyrri kreppum. Hólmfríður Garðarsdóttir og fjölskylda fóru þegar fiskeldið brást, Valgerður Bagley þegar húseignin eyddist á verðbólgubáli á tíma Sigtúnshópsins, og Sævar Sverrisson flutti ungur maður eftir gengishrunið mikla fyrir 40 árum þegar hann sá bjartari framtíð í Noregi.Hér má sjá innslag úr Íslandi í dag um málið.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira