Innlent

Deloitte: Fyrningarleiðin glórulaus

Lóa Pind Aldísardóttir skrifar

Bankakerfið hrynur aftur og nánast öll starfandi sjávarútvegsfyrirtæki fara á hausinn innan fimm ára ef fyrningarleið ríkisstjórnarinnar verður farinn, að mati forstjóra endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte. Fyrirtækið hefur skilað Landssambandi íslenskra útvegsmanna skýrslu um fyrningarleiðina, sem forstjórinn segir glórulausa.

Fyrningarleiðin sem ríkisstjórnin hefur boðað til að stokka upp kvótakerfið snýst um að innkalla 5% af kvóta árlega næstu 20 árin. Útgerðarmenn hafa flestir fullyrt að fyrningarleiðin myndi keyra fyrirtæki þeirra í þrot á fáum árum.

LÍÚ fékk Deloitte til að reikna út áhrif þessarar leiðar. Fréttastofa fékk í dag að skyggnast í drög að skýrslu Deloitte. Þar kemur fram að skuldir sjávarútvegsfyrirtækja hafi aukist mun minna en annarra fyrirtækja í íslensku atvinnulífi á síðustu árum.

Þorvarður Gunnarsson, forstjóri Deloitte, segir allar líkur á að nær öll starfandi sjávarútvegsfyrirtæki lendi í þroti innan fimm ára verði þessi leið farin.

Þeir sem talað hafa fyrir fyrningarleiðinni hafa meðal annars sagt að rekstur útgerða sé með eindæmum fínn um þessar mundir, það sem sligi þau séu veðmál vegna krónu og skuldsetning á verðbólgnum kvóta. Sá hluti sjávarútvegsins sé á hausnum og þurfi að fara á hausinn. En verði það gert, segir forstjóri Deloitte, þá lenda hátt í 400 milljarða króna skuldir að mestu á íslensku ríkisbönkunum. Það sé ekki á bankakerfið bætandi og myndi þýða annað bankahrun.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×