Útlit fyrir að aðildarviðræður verði samþykktar með 35 atkvæðum Heimir Már Pétursson skrifar 11. júlí 2009 18:30
Útlit fyrir að aðildarviðræður verði samþykktar með 35 atkvæðum Útlit er fyrir að þingsályktunartillaga um aðild að Evrópusambandinu verði samþykkt með 35 greiddum atkvæðum á Alþingi. Fimm þingmenn Vinstri grænna, þar af einn ráðherra, munu greiða atkvæði gegn tillögunni. Atkvæðagreiðsla um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu fer í fyrsta lagi fram á Alþingi á mánudag og sennilega ekki fyrr en á þriðjudag. Byrjað verður að greiða atkvæði um tvær breytingartillögur annars vegar frá Sjálfstæðisflokki og hins vegar frá Framsóknarflokki. Þótt einhverjir þingmenn Vinstri grænna greiði tillögu Sjálfstæðismanna um tvöfalda atkvæðagreiðslu atkvæði sitt er líklegt að báðar breytingartillögurnar verði felldar. Þá kemur að því að greiða atkvæði um sjálfa þingsályktunartillöguna. Ekki þarf að velta því fyrir sér hvernig þingmenn Samfylkingarinnar greiða atkvæði, þeir munu allir samþiggja tillöguna. Aftur á móti má reikna með að allir 16 þingmenn Sjálfstæðisflokksins muni greiða atkvæði gegn tillögunni, en það er þó alls ekki öruggt. Ragnheiður Ríkharðsdóttir er líkleg til að sitja hjá eða greiða tillögunni atkvæði sitt. Þá má reikna með að allir þingmenn Borgarahreyfingarinnar geri það einnig, miðað við yfirlýsingar þeirra í upphafi máls og í umræðunni. Eftir að hafa rætt við fjölmarga þingmenn og áhrifafólk í Vinstri grænum telur fréttastofan líklegt að níu af fjórtán þingmönnum Vinstri grænna veiti tillögunni brautargengi, þau Álfheiður Ingadóttir, Árni Þór Sigurðsson, Björn Valur Gíslason, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Lilja Mósesdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Svandís Svavarsdóttir og Ögmundur Jónasson. Fimm þingmenn flokksins, þar af einn ráðherra, muni hins vegar greiða atkvæði gegn tillögunni; eða þau Ásmundur Einar Daðason, Atli Gíslason, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Jón Bjarnason sjávar- og landbúnaðarráðherra og Þuríður Backman. Tveir þingmenn Framsóknarflokksins, þau Guðmundur Steingrímsson og Siv Friðleifsdóttir hafa lýst yfir stuðningi við tillöguna. Birkir Jón Jónsson hefur verið jákvæður út í aðildarumsókn en ekki er ljóst hvað hann mun gera. Aðrir þingmenn Framsóknarflokksins með Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann flokksins í broddi fylkingar, munu væntanlega allir greiða atkvæði gegn aðildarumsókninni. Verði þetta niðurstaðan verður aðildarumsóknin samþykkt með 35 atkvæðum gegn 28, en þetta er auðvitað sagt með þeim fyrirvara að málið er ekki afgreitt fyrr en til atkvæðagreiðslunnar kemur og nokkrir dagar í pólitík eru langur tími.
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira