Kaffibarsrottur keppa í fótbolta 26. ágúst 2009 03:00 Sigurvissir Helgi og Árni Einar standa í ströngu við að skipuleggja fótboltaleik milli eldri og yngri kynslóðar Kaffibarsdrengja.FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR „
Þetta eru allt strákar sem tengjast Kaffibarnum, annaðhvort sem starfsfólk eða fastakúnnar. Við yngri strákarnir skoruðum á þá eldri af því þeir eru búnir að vera með svo mikinn kjaft upp á síðkastið,“ segir Helgi Guðjónsson, starfsmaður Kaffibarsins, sem skipuleggur fótboltaleik þar sem eldri kynslóð Kaffibarsdrengja mætir þeirri yngri. Leikurinn mun fara fram á Hlíðarenda á sunnudaginn næsta. „Ég og nokkrir aðrir sáum um að velja í liðin. Menn sem spila í utandeildinni fá ekki að vera með og ekki heldur þeir sem eru í of góðu formi. Eftir leikinn verður grillað og menn fá afhentar keppnistreyjur og svo verður auðvitað bikarafhending.“ Aðspurður segir Helgi engar stelpur fá að vera með, enda hafi þetta aðeins verið á milli piltanna. „Það voru nokkrar stelpur sem vildu fá að vera með, en ég held að leikurinn verði bara of harður fyrir þær. Menn eru með svo rosalegt keppnisskap,“ segir Helgi, sem er sannfærður um sigur yngri Kaffibarsmanna. Á meðal þeirra sem munu taka þátt í leiknum eru Egill Tómasson tónlistarmaður, Árni Einar Birgisson plötusnúður, Halli Valli, söngvari Ælu, og Svanur Kristbergsson. Þórhallur Sævarsson auglýsingaleikstjóri er einn þeirra sem keppir fyrir hönd eldri kynslóðar Kaffibarsmanna. Hann segist búast við hörðum leik en segir þá eldri vera nokkuð rólega fyrir leikinn. „Það er bæði aldurs- og þyngdarmunur á liðum, þannig ég held það verði auðvelt fyrir okkur að tækla þessa litlu peyja, maður verður búinn að lækka í þeim rostann í lok leiksins. Annars held ég að flestir hlakki bara til að spreyta sig á vellinum, það er orðið svo langt síðan maður hefur sparkað í tuðru,“ segir Þórhallur að lokum. -sm
Mest lesið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar Lífið Góð tannheilsa styður við betra líf: Kristjana Ben tannlæknir gefur ráð Lífið samstarf Áhugi leshringja svo mikill að Salka stækkar Lífið samstarf Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Fleiri fréttir Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Sjá meira