Áheitanúmer söfnunarinnar „Á allra vörum“ opnuð 26. ágúst 2009 11:47 Svanhildur Hólm kemur til með að vinna við útsendingu söfnunarinnar. Mynd/EÓI
Áheitanúmer söfnunarátaksins „Á allra vörum" voru opnuð í morgun og við sama tækifæri reið Já á vaðið og gaf 118.000 krónur í söfnunina, sem að þessu sinni er til styrktar hvíldarheimili fyrir krabbameinssjúk börn og fjölskyldur þeirra. Þá er vefur Já.is málaður bleikur fram á föstudagskvöld. Átakið hófst í lok maí síðastliðinn með sölu á varaglossum frá Dior í samvinnu við Heildverslun Halldórs Jónssonar og Iceland Express. Glossin voru seld í verslunum víðsvegar um landið og um borð í flugvélum Iceland Express. Lokahnykkur átaksins verður söfnunarþátturinn „Á allra vörum" í beinni útsendingu á SkjáEinum föstudagskvöldið 28. ágúst kl. 21.00. Söfnunarþátturinn verður „skemmtiþáttur með tilgangi", þar sem landsþekktar konur og karlar leggja málefninu lið á margvíslegan hátt og allir gefa vinnu sína til styrktar hvíldarheimili krabbameinssjúkra barna. Meðal þeirra sem vinna að útsendingunni eru Jóhanna Vilhjálmsdóttir, Svanhildur Hólm Valsdóttir og Guðrún Þórðardóttir, sem stýra þættinum og þar með söfnuninni. Börn og unglingar úr söng- og leiklistarskólanum Sönglist styðja við bakið á jafnöldrum sínum og hljómsveitin Mannakorn með þá Magnús Eiríksson og Pálma Gunnarsson í broddi fylkingar flytur nokkur lög, en Mannakorn hefur gefið allan ágóða af laginu Von í söfnunina. Stöllurnar úr leiksýningunni Fúlar á móti segja sitt álit á lífinu og tilverunni - og þannig mætti áfram telja. Auk þessa kynnast áhorfendur því hvernig fjölskyldur sem kljást við þennan illvíga sjúkdóm læra að lifa með og takast á við krabbamein og hvers vegna hvíldarheimili er svo þýðingarmikið fyrir börnin og fjölskyldur þeirra. Hægt er að leggja sitt af mörkum með því að hringja í áheitanúmerin eða leggja inn á reikning „Á allra vörum". Áheitanúmerin eru: 903 1000 fyrir þá sem vilja gefa 1.000 kr., 903 3000 fyrir þá sem vilja gefa 3.000 kr. og 903 5000 fyrir þá sem vilja gefa 5.000 kr. Númerin verða opin frá og með deginum í dag og allt þar til útsendingu lýkur á föstudagskvöld. Á meðan á beinni útsendingu stendur verður einnig hægt að hringja í síma 595 6000 þar sem þjóðþekktar konur sitja í þjónustuveri Já og taka við framlögum. Reikningsnúmer átaksins er 0101-26-55555 og kennitala 510608-1350.
Mest lesið Afhjúpaði óléttuna á epískan hátt enn og aftur Tíska og hönnun Klækir, prettir og kardínálaklíkur í páfakjöri Gagnrýni Jóhanna og Geir trúlofuðu sig við Eiffel-turninn Lífið Þau allra nettustu á Met Gala Tíska og hönnun Blautir búkar og pylsupartí Menning Var ekki beðinn um að skrifa meira á RÚV eftir pistilinn 2022 Lífið Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Tónlist Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp Plönuðu skemmtileg stefnumót fyrir fjögur þúsund krónur Lífið „Ég fór úr sjötíu prósent þjáningu niður í tíu prósent“ Lífið Fleiri fréttir Handtekinn eftir að hafa keyrt niður hliðið að heimili Aniston Jóhanna og Geir trúlofuðu sig við Eiffel-turninn Plönuðu skemmtileg stefnumót fyrir fjögur þúsund krónur Fyrsti opinberi kossinn í þrítugsafmælinu Réttarhöld yfir Diddy hafin: Á lífstíðarfangelsi yfir höfði sér Lára og lyfjaprinsinn eignuðust stúlku Stjörnulífið: Drottningar á Bessastöðum Áttu sturlaða stund á Times Square The Wire og Sopranos-leikari látinn Var ekki beðinn um að skrifa meira á RÚV eftir pistilinn 2022 Björgólfur og Kristín í fimmtugsafmæli Beckham Katrín Tanja og Brooks eiga von á barni Frábær þjóðbúningamessa í Fljótshlíð Tónleikar Lady Gaga æðislegir og öryggisgæslan svakaleg Pedro Pascal fékk sér að borða á Kaffi Vest Hátt í þrjú þúsund manns sóttu „þjóðfund“ EVE-spilara Áhorfendur djúpt snortnir á forsýningu Stóru stundarinnar Stærsti sinueldur Íslandssögunnar í myndum „Ég fór úr sjötíu prósent þjáningu niður í tíu prósent“ „Svo byrjaði ég að kyssa stráka og varð allt í einu algjör uppreisnarseggur“ Krakkatían: Nintendo, tunglið og prinsessur Milljón manns í Rio til að sjá ókeypis Lady Gaga tónleika Býður í hláturstund við gömlu þvottalaugarnar Sýningin gott fyrir- og eftirpartý Ingvar E. valinn besti leikarinn í Belgíu Forstjórabaninn fær söngleik á fjalirnar „Ye mátti þola versnandi andlega heilsu vegna gjörða þinna“ Fréttatía vikunnar: Rafmagnsleysi, njósnir og SFS Ætlaði aldrei að enda í herskóla í Bandaríkjunum Með höfuðið rétt skrúfað á og gleyma aldrei hjálminum Sjá meira
Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp
Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Bíó og sjónvarp