Leikur aðalhlutverkið í myndum um Wallender 1. desember 2009 06:00 Sverrir mundar byssuna sem Pontus í mynd um Kurt Wallender. Hlutverk Sverris er nokkuð lítið til að byrja með en því vex ásmeginn eftir því sem myndunum fjölgar.
Sverrir Guðnason, þrítugur Íslendingur sem búsettur er í Svíþjóð, leikur eitt aðalhlutverkanna í nýjum sjónvarpsþáttum um rannsóknarlögreglumanninn Kurt Wallender. Um er að ræða þrettán myndir, tólf sem fara á DVD-diska og síðar í sjónvarp og svo eina kvikmynd sem sýnd verður í sænskum kvikmyndahúsum. „Ég hef verið að leika mikið í Svíþjóð, bæði í sjónvarpi og kvikmyndum, og var bara fengin til að vera með, þetta er bara mjög gott mál“ segir Sverrir í samtali við Fréttablaðið. Sverrir hefur búið mestalla ævi sína í Svíþjóð. Ef undanskilin eru átta ár hér heima. „Ég bjó hérna úti til fjögurra ára aldurs en þá fluttum við heim,“ segir Sverrir en hann er sonur Guðna Jóhannessonar, orkumálastjóra. „Við bjuggum hér þar til ég varð tólf ára en þá snérum við aftur til Svíþjóðar.“ Þessi átta ár höfðu þó mikil áhrif á Sverri því það var hér sem draumurinn um að verða leikari kviknaði. „Ég lék ungan Ólaf ljósvíking í uppfærslu Borgarleikhússins árið 1989 og eftir það var framtíðarstarfið eiginlega ákveðið,“ segir Sverrir og hlær. En þá aftur að Wallender. Sverrir segir þetta hafa verið mikla vinnu, tökur hafi staðið yfir í eitt og hálft ár. „Ég leik Pontus og þetta hlutverk er lítið í fyrstu myndunum. En svo vex því ásmeginn og í mynd númer tíu, held ég, er Pontus hálfpartinn í aðalhlutverki,“ útskýrir Sverrir en þegar hann hefur safnað kröftum eftir Wallender-tímabilið þá mun hann leika fyrir sænska ríkissjónvarpið. Sverrir vildi ekki gefa upp hvað það væri, slíkt væri ekki tímabært eins og málin stæðu í dag. Sverrir heimsækir Ísland tvisar á ári og segist alltaf hugsa um sig sem Íslending þótt hann hafi verið búsettur svona lengi í Svíþjóð. Og hann útilokar ekki að leika í einhverju íslensku verki þegar fram líða stundir. „Það er alltaf draumur, að koma heim og leika. Það virðist allavega alltaf vera eitthvað í gangi á Íslandi.“freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Lífið Flippuðust og fáklæddust á Emmy-hátíðinni Tíska og hönnun Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Lífið Bob Mackie er látinn Lífið Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Sjá meira