Stór maður með litla plötu 1. desember 2009 06:00
Sigurður Guðmundsson og Memfis mafían gerðu allt vitlaust með eldgömlum íslenskum slögurum í fyrra á plötunni Oft ég spurði mömmu. Sú plata var öll tekin upp á einn míkrafón eins og vaninn var á sjötta áratugnum. Í lok vikunnar er von á tveimur jólalögum frá Sigurði og mafíunni. Nú er reyndar tekið upp með nútímatækni en útgáfuformið er fornt: Lögin tvö koma út á lítilli vinýlplötu. Þetta er að öllum líkindum fyrsta litla jólaplatan á vinýl síðan SG hljómplötur gaf út jólaplötu með Stúlknakór Selfoss árið 1973! Eru menn nú endanlega orðnir vitlausir? „Já ætli það ekki bara!“ segir Sigurður og hlær. Hann segir að fólk hafi verið að spyrja sig hvort ekki væri von á „einhverju jóladóteríi“ frá honum og fyrst það hafi bara komið tvö lög hafi verið kjörið að gefa þau út á vinýl-plötu. „Hvað gerir maður annars við tvö lög? Þau hefðu bara orðið undir ef þau hefðu bara komið út í stafrænu formi,“ segir Sigurður. „Svo er umslagið hálfpartinn eins og merkimiði í laginu og það má alveg nota plötuna sem merkimiða. Aðallega erum við þó bara að minna á að við séum ennþá starfandi. Það er aldrei að vita nema að þetta sé forsmekkurinn af einhverju meiru. Maður veit samt aldrei lengra en nef sér. Sérstaklega þegar maður býr á Íslandi.“ Hvað sem öðru líður á fastlega von á að koma með nýja plötu á næsta ári. Líklega næsta haust. Jólalögin sem Sigurður syngur á litlu plötunni voru upphaflega með Roy Orbison og Walker Brothers, en hirðskáldið Bragi Baggalútur Skúlason hefur íslenskað þau. Nú heita þau „Það snjóar“ og „Þá komu jólin“. Plötunni fylgir svo vefslóð þar sem hægt er að nálgast lögin á stafrænu formi.- drg
Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Sjá meira