Ungir jafnaðarmenn leggjast gegn skerðingu á fæðingarorlofi 1. desember 2009 15:09
Ungir jafnaðarmenn leggjast gegn þeim áformum félagsmálaráðherra að skerða fæðingarorlof, hvernig sem þær tillögur verða framkvæmdar. Frá þessu segir í yfirlýsingu frá UJ. Í umræðu hafa verið tillögur um að skerða hámarksgreiðslur niður í 300 þúsund eða að gera foreldrum að fresta töku eins mánaðar af fæðingarorlofi um nokkur ár. Ungir jafnaðarmenn benda á að nú þegar hafi hámarksgreiðslur úr fæðingarorlofssjóði verið skornar niður, úr 650 þúsundum í 350 þúsund og að enn sé verið að brýna hnífana. „Ungir jafnaðarmenn gera sér grein fyrir því að ástandið er erfitt og víða þarf að skera niður en hvetja þingmenn og ráðherra að standa vörð um þennan grunnþátt velferðarkerfisins." Þá er bent á að fæðingarorlof hér á landi sé það stysta samanborið við önnur Norðurlönd og verði stytting fæðingarorlofs að veruleika munu Íslendingar færas enn fjær Norrænu velferðarríkjunum. „Auk þess samræmist stytting fæðingarorlofs engan vegin tilmælum heilbrigðisyfirvalda landsins um aðbúnað og brjóstagjöf ungbarna." Þá lýsa Ungir jafnaðarmenn yfir áhyggjum af því að skerðing fæðingarorlofs verði skref aftur á við í jafnréttisbaráttunni. „Ungabörn eru háðari móðurinni ef barnið er á brjósti og karlmenn eru jafnan tekjuhærri en konur. Því er viðbúið að karlmenn skerði fæðingarorlof sitt og leiðir það til þess að staða kvenna á vinnumarkaði versnar enn og undið verður ofan af þeim framfaraskrefum sem þó hafa verið stigin með fæðingarorlofskerfinu." „Er það von Ungra jafnaðarmanna að ríkisstjórnin leiti fjármuna annarsstaðar en í fæðingarorlofssjóði," segir að lokum.
Mest lesið Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Innlent „Botninum hefur verið náð“ Innlent „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Erlent Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Erlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess Innlent Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Innlent Fleiri fréttir Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Sjá meira