Vilji þóknast landsbyggðarhagsmunum 1. desember 2009 06:00 Örn Sigurðsson
Forseti borgarstjórnar er að þóknast landsbyggðarhagsmunum í borginni með málflutningi sínum um Reykjavíkurflugvöll og það er skammarlegt að hann hnýti í eina manninn sem gætir hagsmuna borgarbúa í Sjálfstæðisflokknum, Gísla Martein Baldursson. Svo segir Örn Sigurðsson, einn talsmanna Samtaka um betri byggð. Hann minnir á að Reykvíkingar hafi kosið sérstaklega gegn flugvellinum árið 2001. Forseti borgarstjórnar, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sagði í blaðinu í síðustu viku að ljóst væri að flugvöllurinn yrði ekki færður á næstunni og vísaði til efnahagsástandins í landinu. Hann vildi ekki svara því hvort til greina kæmi að breyta aðalskipulagi til að festa völlinn í sessi. Örn segir að Vilhjálmur hafi lofað kjósendum sínum fyrir kosningarnar 2006 að flugvöllurinn yrði farinn árið 2016. Að vilja festa flugvöll í sessi vegna efnahagsástandsins sé út í hött. „Það var alltaf slæmt að hafa flugvöllinn þarna en nú eftir hrunið er markaður innanlandsflugs hruninn. Og unga fólkið sem kemur út á markaðinn næstu ár getur ekki rekið marga bíla til að búa uppi á heiði. Sá tími er liðinn. Núverandi ástand hrópar á að fleirum verði gefinn kostur á að búa á besta stað á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Örn. Vilhjálmur horfi ekki á málið í heild sinni. „Svo gerir hann lítið úr yfirlýsingu Gísla Marteins um að vera vallarins kosti fjóra milljarða á ári. Borgarstjóri og samgönguráðherra samþykktu að gera úttekt árið 2005 á þessum kostnaði. Samkvæmt henni kostar flugvöllurinn að minnsta kosti fjóra milljarða á ári, á verðlagi ársins 2005. Við teljum þetta vera allt að tíu sinnum dýrara,“ segir Örn. - kóþ
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira