Innlent

Stjórn UVG mótmælir niðurskurði Árna Páls

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ungliðar í Vinstri grænum leggjast gegn tillögum sem þeir segja að séu runnar undan rifjum Árna Páls Árnasonar. Mynd/ GVA.
Ungliðar í Vinstri grænum leggjast gegn tillögum sem þeir segja að séu runnar undan rifjum Árna Páls Árnasonar. Mynd/ GVA.
Stjórn Ungra vinstri grænna leggst alfarið gegn tillögum Árna Páls Árnasonar félagsmálaráðherra um frekari niðurskurð á fæðingarorlofi. Þetta kemur fram í ályktun sem stjórnin sendi frá sér undir kvöld. Ungliðarnir minna á að kjör nýbakaðra foreldra hafi þegar verið skert umtalsvert á síðasta ári og hámarksgreiðslur lækkaðar.

„Þar sem börn á Íslandi komast yfirleitt ekki á leikskóla fyrr en á öðru aldursári - og þörfin fyrir fæðingarorlof því mest á fyrstu tveimur æviárum barna - er frestun fæðingarorlofs til þriggja ára vægast sagt óheppileg leið til þess að bregðast við vanda sem þjóðin stendur frammi fyrir. Þessi breyting kemur sér sérstaklega illa fyrir einstæða foreldra og telur stjórn Ungra vinstri grænna það furðu sæta að ætlast sé til þess að foreldri skilji fimm mánaða barn sitt eftir hjá dagforeldri á sama tíma og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hvetur til þess að börn séu eingöngu á brjósti til sex mánaða aldurs," segir í ályktuninni.

Þá segist stjórn Ungra vinstri grænna telja það mikilvægt að fallið verði frá breytingum á orlofsgreiðslum og þannig staðið vörð um þann tíma sem foreldrar geti átt með börnum sínum á fyrsta æviári þeirra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×