Innlent

Gróðurhúsin stóðu af sér skjálftann

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björn Lárus Örvar segir að húsin séu sterkbyggð. Mynd/ Stefán.
Björn Lárus Örvar segir að húsin séu sterkbyggð. Mynd/ Stefán.
„Ég var búinn að vera í sambandi við stöðvarstjórann. Þeir urðu mjög varir við skjálftann en húsið er mjög sterkt byggt," segir Björn Lárus Örvar. Hann rekur ORF líftækni sem opnaði gróðurhús í Grindavík fyrir um það bil ári síðan. Sem kunnugt er varð jarðskjálfti upp á 4,9 á Richter á nálægum slóðum í gær. Björn segir að ekkert hafi skemmst í skjálftanum en rafmagnið hafi slegið út eins og annarsstaðar í Grindavík.

„Við verðum að reyna að tengja alla stýringu á húsið aftur með vararafstöð eða einhverju slíku. Ef við fáum ekki rafmagn aftur á húsið að þá er þetta náttúrlega ekki gott mál," segir Björn Lárus.

Björn segir að starfsemin sé auðvitað mjög viðkvæmt fyrir uppákomu eins og þessari en Hitaveitan segi að rafmagn verði líklega komið á um tólfleytið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×