Lán Norðmanna háð AGS 14. október 2009 03:30 Fjárlaganefnd norska Stórþingsins tók af allan vafa í maí um að aðstoð við Ísland væri háð því að landið stæði við alþjóðlegar skuldbindingar sínar.
Í erindi norsku fjárlaganefndarinnar til Stórþingsins kemur skýrt fram að lán til Íslendinga haldist í hendur við afgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á málefnum þjóðarinnar. Þá verði Íslendingar að standa við sínar alþjóðlegu skuldbindingar og fara eftir regluverki Evrópusambandsins um fjármál. Undir þetta plagg rita formaður nefndarinnar, Reidar Sandal, og talsmaður hennar, Per Olaf Lundteigen. Sá síðarnefndi er þingmaður norska Miðflokksins og það var ekki síst eftir samtal við hann að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Höskuldur Þórhallsson þingmaður héldu til Noregs til að kanna möguleika á lánalínu fyrir Íslendinga. Þeir Lundteigen og Sandal rita undir skjalið 5. maí. Í því er norska fjármálaráðuneytinu veitt heimild til að veita ríkisábyrgð á aðstoð til Íslendinga fyrir 675 milljónir norskra króna. Þar segir: „Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð hafa sett að skilyrði fyrir láninu að Ísland fylgi þeirri efnahagsáætlun sem náðst hefur samkomulag við AGS um og að áfangar hennar verði samþykktir í stjórn AGS. Í því felst að Ísland standi við alþjóðlegar skuldbindingar sínar, þar með talið innlánstryggingaskuldbindingar, samkvæmt regluverki Evrópusambandsins og að Ísland ráðist í nauðsynlega styrkingu opinbers fjármálakerfis og íslensks efnahags.“- kóp
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira