Sendiráðsþjófurinn þjáist af alvarlegri spilafíkn Helga Arnardóttir skrifar 14. október 2009 18:34
Forgangsröðum og skortur á mannafla kom í veg fyrir að Ríkisendurskoðun færi yfir bókhald sendiráðanna í fyrra. Konan sem gegndi starfi bókara í sendiráðinu í Vín og grunuð er um að hafa dregið sér rúmlega fimmtíu milljónir króna er talin þjást af alvarlegri spilafíkn sem hafi farið úr böndunum. Ekki er ljóst yfir hversu langt tímabil fjárdrátturinn á að hafa staðið en konan gegndi starfi bókara hjá sendiráðinu á annað ár. Grunur leikur á að konan hafi dregið sér rúmlega fimmtíu milljónir króna en þess má geta að fjárframlög til sendiráðsins í Vín voru 57 milljónir í fyrra. Hún mun hafa haft aðgang að reikningum sendiráðsins en einnig utanríkisráðuneytisins. Samkvæmt heimildum fréttastofu glímir konan við alvarlega spilafíkn og virðast peningar ráðuneytisins hafa farið í veðmálsleiki á netinu. Konan sem er um þrítugt, er barnshafandi og var vikið frá störfum eftir að hún játaði brot sitt. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að um sé að ræða mannlegan harmleik þar sem ung manneskja lendi í erfiðum kringumstæðum. Hann segist hafa samúð með konunni. Ríkisendurskoðun hefur nú þegar hafið rannsókn á verklagi utanríkisráðuneytisins. Sveinn Arason ríkisendurskoðandi segir hins vegar að bókhald sendiráðanna hafi ekki verið endurskoðað í fyrra og það sem af er þessu ári. Sveinn segir rannsókn ríkisendurskoðunar skammt á veg komna og var ekki tilbúinn að segja hvort um vanrækslu væri að ræða hjá utanríkisráðuneytinu.
Mest lesið Bátar brenna í Bolungarvík Innlent Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Innlent Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Innlent Meðvitundarlaus maður sóttur í Silfru Innlent „Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Innlent Stal 73 rauðvínsflöskum og rúllaði burt á þríhjóli Erlent Segir Guðlaug fara með rangt mál: „Hvimleið þessi valkvæða hlustun stjórnarandstöðunnar“ Innlent Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Innlent Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Fleiri fréttir „Ökum slóðann” – Átaksverkefni gegn utanvegaakstri Erlendur ferðamaður lést við Hrafntinnusker Meðvitundarlaus maður sóttur í Silfru Segir Guðlaug fara með rangt mál: „Hvimleið þessi valkvæða hlustun stjórnarandstöðunnar“ Bátar brenna í Bolungarvík Utanríkisráðherra segir stjórnarandstöðuna fara rangt með mál „Fór algjörlega fram úr björtustu vonum“ Tekist á um Evrópumálin Merkúr Máni sótti brons í Ólympíukeppninni í líffræði Leigubíll án verðmerkingar og veitingastaðir í óleyfi Virknin minnkað þó áfram gjósi Tjald vonarinnar brann til kaldra kola Skötumessur Ásmundar Friðrikssonar gefa vel af sér „Þá er samkeppnishæfnin farin, það segir sig bara sjálft“ Líkamsárás í farþegaskipi „Kaldar kveðjur frá ESB“ og tilfinningaþrungin stund á Druslugöngu Hvalfjarðargöng opin á ný „Það er verið að taka aðeins of mikið“ Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Mögulegir Evróputollar á íslenskar vörur, lundastofn í rénun og Druslugangan Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Áfram gýs úr einum gíg „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Vill bjóða borgarstjóra í vöfflukaffi eftir deilurnar Ósammála Náttúrufræðistofnun og segja veiðar á lunda forsvaranlegar Sjá meira