Partípinni fær skilorð og sekt 14. október 2009 16:20 Andrés Pétur Rúnarsson sektaður um tíu milljónir.
Veitingamaðurinn Andrés Pétur Rúnarsson var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir skattsvik. Hann er ennfremur dæmdur til þess að greiða tæpar tíu milljónir í sekt til ríkissjóðs. Hann var framkvæmdastjóri einkahlutafélagsins Eignasölunnar Stuðlabergs en félaginu láðist meðal annars að skila inn virðisaukaskattsskýrslum vegna uppgjörstímabilanna frá janúar 2001 til ágúst 2002. Þá stóð félagið ekki í skilum á skattframtölum félagsins gjaldárin 2002 og 2003, vegna tekjuáranna 2001 og 2002, og þannig ekki talið fram til skatttekjur sem skattskyldar eru. Brot ákærða gegn lögum um virðisaukaskatt, gegn lögum um bókhald og lögum tekjuskatt teljast í heild vera stórfelld. Þá þykja brotin að mati héraðsdóms sýna ófyrirleitinn brotahug og það er einnig til þess að þyngja refsingu Andrésar að hann var löggiltur fasteignasali þegar hann framdi þau. Ákæran gegn Andrési var í þremur liðum. Hann var alfarið sýknaður í einum lið og hluta af hinum tveimur liðunum. Refsing hans þykir því vera hæfilega ákveðin fangelsi í 8 mánuði og fellur hún niður haldi hann almennt skilorð næstu tvö árin. Hann þarf að greiða 9,6 milljónir í sekt, sem er þreföld upphæðin sem hann var dæmdur fyrir að svíkja út. Greiðist hún ekki innan fjögurra vikna kemur 75 daga fangelsi í staðinn.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Sjá meira