Fengu ekki að greiða atkvæði 24. apríl 2009 03:30 Hrefna Kap Gunnarsdóttir Býr í Danmörku og er vonsvikin yfir að geta ekki tekið þátt kosningunum til Alþingis heima á Íslandi. „
Þetta er frekar spælandi þegar maður ætlar að taka þátt í sennilega mikilvægustu kosningum lífs síns," segir Hrefna Kap Gunnarsdóttir, sem í gær var vísað frá kjörstað á ræðismannsskrifstofu Íslands í Árósum í Danmörku. „Þegar ég mætti til konsúlsins var okkur vísað frá vegna þess að kjörseðlarnir voru búnir," lýsir Hrefna. „Síðan var því bætt við að það myndi hvort eð er ekki þýða neitt því seðlarnir myndu ekki ná heim í tæka tíð. Þó var búið að auglýsa hjá Íslendingafélaginu að þetta væri síðasti dagurinn til að kjósa þannig að kjörseðlarnir kæmu heim á réttum tíma. Og í framhaldinu var okkur samt boðið að fara niður til Horsens, sem er í sextíu kílómetra fjarlægð og kjósa þar." Að sögn Hrefnu komu fjórir aðrir á ræðismannsskrifstofuna til að kjósa þegar hún var þar um tvöleytið í gær og fengu sömu skilaboð. Sjálf hafi hún ekki haft tök á að fara til Horsens enda skammur tími til stefnu auk þess sem hún hafi verið með þrjú börn með sér. Þess utan hafi hún heyrt að mikil vandamál hafi verið með kosninguna í Horsens. Langar biðraðir hafi myndast og sumir gefist upp á biðinni. Þannig að Hrefna Kap Gunnarsdóttir greiðir ekki atkvæði í alþingiskosningunum og finnst það súrt í broti: „Það er kannski í lagi ef tölvukerfi klikkar en að eiga ekki kjörseðla er eitthvað sem á ekki að gerast." - gar
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira