Sena og Hagar brotlegir: Þurfa að borga samanlagt 35 milljónir 14. október 2009 15:59 Hagkaup tilheyrir Högum.
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest að annars vegar Hagar og hins vegar Sena hafi brotið gegn banni samkeppnislaga við því að samruni komi til framkvæmda áður en Samkeppniseftirlitið hafi heimilað hann. Jafnframt er staðfest 20 milljón króna sekt á Haga og 15 milljón króna sekt á Senu vegna þessara brota. Þetta kemur fram á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins. Í samkeppnislögum er lagt bann við því að samruni komi til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann. Er ólögmætt að samruni komi til framkvæmda áður en hann er tilkynntur Samkeppniseftirlitinu og meðan á málsmeðferð þess stendur. Er þessari reglu ætlað að tryggja að unnt sé með fullnægjandi hætti að vinna gegn samkeppnishamlandi samrunum. Mál Haga varðar samruna sem fólst í kaupum félagsins á BT-verslunum í nóvember 2008. Var sá samruni framkvæmdur af Högum áður en hann var tilkynntur Samkeppniseftirlitinu, en skylt er að tilkynna eftirlitinu tiltekna samruna. Fólst í þessu brot á umræddu ákvæði samkeppnislaga. Eftir að Samkeppniseftirlitið birti það frummat sitt að umræddur samruni væri samkeppnishamlandi gengu kaupin til baka og BT er ekki lengur í eigu Haga. Mál Senu tengist kaupum félagsins á Skífunni sem áttu sér stað í október 2008. Var sá samruni framkvæmdur af Senu áður en hann var tilkynntur Samkeppniseftirlitinu. Fólst í þessu brot Senu á umræddu ákvæði samkeppnislaga. Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá 2. apríl 2009 var komist að þeirri niðurstöðu að samruni Senu og Skífunnar raskaði samkeppni. Þar sem annar aðili hafði í millitíðinni eignast Senu var talið unnt að heimila samrunann að uppfylltum skilyrðum til þess að vernda samkeppni.
Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Sjá meira