Innlent

Von á bráðabirgðaniðurstöðum krufningar í dag

MYND/Vilhelm

Vonast er til að bráðabirgðaniðurstöður krufningar í tengslum við andlát konu sem fannst í dúfnakofa í Hafnarfirði fyrir helgi liggi fyrir síðdegis. Sambýlismaður konunnar var úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald vegna gruns um að hann hefð átt aðild að láti hennar.

Hann hefur verið yfirheyrður vegna málsins, en lögreglan gefur að svo stöddu ekkert uppi um hvort maðurinn hafi gefið upplýsingar sem koma að gagni við rannsókn málsins. Hann verður yfirheyrður á ný eftir að fyrstu niðurstöður krufningar liggja fyrir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×