Íslendingur farðar fyrir Úlfamynd 24. ágúst 2009 05:30 Stefán Jörgen hitti hvorki Benicio Del Toro né Anthony Hopkins sem leika í The Wolf Men en var hluti af förðunarliði myndarinnar í Englandi.
Íslenski förðunarmeistarinn, Stefán Jörgen, brá heldur betur í brún þegar hringt var í hann fyrir nokkru og hann beðinn um að koma til starfa við Hollywood-kvikmyndina The Wolf Man. Sá sem bað sérstaklega um Stefán heitir Rick Baker og er einn sá allri besti í þessum bransa, hefur hlotið ótal verðlaun í kvikmyndabransanum, meðal annars sex Óskarverðlaun. Baker er því hálfgerð hetja í förðunarbransanum hvað kvikmyndir varðar. Stefán viðurkennir að hann hafi fyrst haldið að símtalið væri eitthvað djók en kona frá Pinewood-myndverinu í Beckingham-skíri var hinum megin á línunni. „Ég var bara spurður hvort ég væri laus í vinnu, Baker hefði beðið sitt fólk um að athuga hvort ég væri til,“ segir Stefán sem var nývaknaður þegar kallið barst og var því ekki viss um hvort hann væri að dreyma eður ei. Svo reyndist ekki vera og förðunarmeistarinn hélt utan til Englands. Hann upplýsir þó fljótlega að hann hafi ekki hitt neina af þeim stórstjörnum sem leika í The Wolf Man en meðal þeirra eru Óskarsverðlaunahafarnir Benicio Del Toro og Anthony Hopkins auk barnabarns Charlie Chaplin, Geraldine Chaplin. „Nei, nei, það gerði heldur ekkert til, þetta var bara fyrst og fremst skemmtilegt en um leið ákaflega stressandi. Það er svolítið stress við svona stórar myndir,“ segir Stefán en hann hefur þó áður fengið að bragða á Hollwyood-stórmyndum því Stefán var hluti af förðunarliði Flags of our Fathers og Letters from Iwo Jima sem Clint Eastwood tók upp hér á landi. Stefán hefur engu að síður ekki hugmynd um hvort hann muni endurtaka þetta í bráð. „Kannski, kannski ekki. Það kemur bara í ljós.“- fgg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira