Sport

Murray komst auðveldlega í þriðju umferð

Ómar Þorgeirsson skrifar
Andy Murray.
Andy Murray. Nordic photos/Getty images

Tenniskappinn Andy Murray átti ekki í teljandi erfiðleikum gegn Ernests Gulbis á Wimbledon-mótinu í tennis í dag og er kominn í þriðju umferð mótsins eftir 6-2, 7-5 og 6-3 sigur.

Hinn skoski Murray er eini Bretinn sem er eftir í keppninni en Fred Perry er síðasti Bretinn til þess að vinna sigur á Wimbledon þegar hann vann mótið þrjú ár í röð á árunum 1934-1936.

Helsti keppinautur Murray, Svisslendingurinn Roger Federer, tryggði sig auðveldlega áfram í þriðju umferðina í gær með því að vinna Spánverjann Guillermo Garcia-Lopez.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×