Sagði af sér sem formaður landskjörstjórnar 12. febrúar 2009 21:58 Gísli Baldur Garðarsson, hæstaréttarlögmaður.
Gísli Baldur Garðarsson, hæstaréttarlögmaður, sagði nýverið af sér sem formaður landskjörstjórnar en stjórnin sér um framkvæmd kosninga til Alþingis og gefur út kjörbréf til þingmanna. Í samtali við fréttastofu sagði Gísli formennsku í stjórninni alla jafna hafa verið í höndum fulltrúa sem skipaður sé þeim flokki sem fari með forsætisráðuneytið hverju sinni. Því hafi verið eðlilegt að hann léti af störfum þegar ný ríkisstjórn var mynduð. Gísli sendi Sturlu Böðvarssyni, þáverandi forseta Alþingis, bréf þess efnis mánudaginn 2. febrúar, daginn eftir að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var mynduð formlega. Landskjörstjórn var kosin á Alþingi sumarið 2007. Auk Gísla voru Hervör Lilja Þorvaldsdóttir, Ástráður Haraldsson, Bryndís Hlöðversdóttir og Þórður Bogason kjörin í stjórnina. Bréf Gísla til forseta Alþingis: „Hr. forseti Alþingis Sturla Böðvarsson. Ég undirritaður tilkynni þér hérmeð afsögn mína sem oddviti landskjörstjórnar. Jafnframt hef ég ákveðið að hætta í landskjörstjórn og óska eftir því að varamaður verði kallaður til starfa í minn stað. Þessi ákvörðun mín er tekin í ljósi þess, að ný ríkisstjórn hefur nú tekið við völdum í landinu. Formennska í landskjörstjórn hefur alla jafna verið í höndum fulltrúa, sem tilnefndur er af þeim þingflokki, sem fer með forsætisráðuneytið hverju sinni. Sú regla er eðlileg, ekki síst nú, þegar ljóst er að ný ríkisstjórn hefur í hyggju að gera umfangsmiklar breytingar á kosningalögum. Aðkoma landskjörstjórnar að undirbúningi að breytingum á kosningalögum hefur þegar verið nokkur og verður án efa enn meiri á þeim stutta tíma sem ríkisstjórnin ætlar sér til þess að koma breytingum í gegn. Ég tel rétt að fulltrúi flokks forsætisráðherra leiði þá vinnu. Virðingarfyllst, Gísli Baldur Garðarsson."
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Fleiri fréttir Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Sjá meira