Sveitarstjóra greinir á um fyrningarleið 26. maí 2009 05:30 Hverju má eiga von á? Bæði núverandi kerfi sem og fyrirhuguð fyrningarleið valda þeim sem byggja afkomu sína á sjávarútvegi óöryggi.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, segir áform ríkisstjórnarinnar um að beita fyrningarleiðinni hafa þegar valdið skaða í Vestmannaeyjum. „Fyrirtæki sem sjá fram á það að ríkisstjórnin ætli að setja þau á hausinn á sjö árum, hætta ósjálfrátt að sinna þróunar- og uppbyggingarvinnu," segir hann. „Við sjáum þetta til að mynda í því að nær öllum verksmiðjuframkvæmdum, uppbyggingu á vinnsluhúsum og endurbótum á skipum og fleira, hefur verið slegið á frest meðan þessi óvissa ríkir." Hann nefnir sem dæmi að Vinnslustöðin hafi hætt við að rífa eitt vinnsluhúsa sinna og reisa nýtt vegna óvissunnar. „Það er verkefni upp á mörg hundruð milljónir og hefði skaffað ársstörf fyrir tugi einstaklinga," segir Elliði. Grímur Atlason, fyrrverandi bæjarstjóri Bolungarvíkur og núverandi sveitarstjóri Dalabyggðar, er ekki sammála Elliða. „Það er ekki meira öryggi að búa við það að nær allt atvinnulíf eins sveitarfélags velti á geðþótta eins útgerðarmanns," segir Grímur. Hann er fylgjandi fyrningarleiðinni eins og Vinstri grænir setja hana upp en þá er einn þriðji af innkölluðum kvóta bundinn við heimasvæði. Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, segir einnig mikið óöryggi fylgja kvótakerfinu og að sveitarstjórnarmenn hafi víða lent í þeirri óþægilegu stöðu að sjá sig knúna til að leggja fjármagn inn í fyrirtæki sem starfa í heimabyggð með það fyrir augum að tryggja atvinnulífið á svæðinu. En síðan hafi fyrirtæki hætt starfsemi þar nánast í kjölfarið, ýmist vegna þess að ekki hafi verið rekstrargrundvöllur fyrir þau lengur eða þá að þau hafi hreinlega verið seld. „Við settum 180 milljónir í slíkt fyrirtæki sem síðan hætti starfsemi einu og hálfu ári síðar og öllu starfsfólki var sagt upp," segir hann. Ómar Már segir sveitarstjórn Súðavíkurhrepps taka heilshugar undir þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að gera hlutlausa og faglega úttekt á áhrifum fyrningarleiðar í samræmi við stjórnarsáttmála þar um. „Ég undrast viðbrögðin [hjá sveitarstjórnarmönnum] og velti því fyrir mér þegar ég heyri henni andmælt af slíku offorsi að sveitarstjórnarmenn kunni að vera undir pressu frá útgerðarmönnum um að standa vörð um þeirra hag því annars selji þeir aflaheimildirnar í burtu. En þrátt fyrir þær mótbárur þá vænti ég þess að sjávarútvegsráðherra standi við þau áform að láta gera þessa úttekt." jse@frettabladid.is Elliði Vignisson Ómar Már Jónsson Grímur Atlason
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Fleiri fréttir „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Fagnar fjölgun skráninga í Þjóðkirkjuna Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Sjá meira