Dómsmálaráðherra hrökklaðist úr Háskólanum 16. október 2009 16:25 „
Þú ert með blóðugar hendur" og „Ragna morðingi" var meðal þess sem mótmælendur hrópuðu að Rögnu Árnadóttur, dómsmála- og mannréttindaráðherra, á ráðstefnu um mannréttindi og lýðræði í Háskóla Íslands í dag. Hún hvarf á braut án þess að hafa náð að flytja ávarp á ráðstefnunni. Dómsmálaráðuneytið vísaði þremur flóttamönnum úr landi til Grikklands á miðvikudag á grundvelli Dyflinnarsáttmálans. Mennirnir komu hingað til lands fyrir tæpu ári en þeir eru frá Írak og Afganistan. Mótmælendur segja að mannanna bíði nöturleg vist í Grikklandi og að þeir verði að öllum líkindum sendir til heimalanda sinna í lífshættulegar aðstæður. Í hádeginu fór fram mótmælafundur á Lækjartorgi og þá var ákvörðun ráðuneytisins mótmælt fyrir utan heimili dómsmála- og mannaréttindaráðherra í fyrrakvöld. Ragna átti að ávarpa ráðstefnuna en gat það ekki vegna þess að mótmælendur gerðu hróp að henni. Samkvæmt heimildum fréttastofu var Ragna meðal annars sögð brjóta mannréttindi og kölluð morðingi. Þá var ráðstefnan sem boðað var til í tilefni 50 ára afmælis Mannréttindadómstóls Evrópu og 60 ára afmælis Evrópuráðsins kölluð fasistaráðstefna. Ása Ólafsdóttir, aðstoðarmaður ráðherrans, segir að Ragna hafi staðið í pontu um stund og beðið þess að flytja árvarp sitt. Það hafi henni ekki tekist vegna mótmælanna en gera þurfti hlé á ráðstefnunni vegna þessa. „Ragna ákvað að fara til að ráðstefna um þetta mikilvæg efni gæti farið fram."
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja Sjá meira