Innlent

Eurovision kostar Rússa minnst fimm milljarða

Guðjón Helgason skrifar
MYND/GETTYIMAGES
Það kostar Rússa minnst fimm milljarða króna að halda Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Moskvu. Keppnin í ár er sögð mun dýrari en þær sem haldnar hafa verið síðustu ár og ekki er talið að neinn beinn hagnaður verði af henni.

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir söng sig í úrslti Eurovision söngvakeppninnar í Mosvku á laugardaginn. Lagið hefur þotið upp lista hjá veðbönkum og sem dæmi spáir William Hill veðbankinn breski því fimmta sæti.

Nú munu þær þjóðir sem eru sigurstranglegar þetta árið eflaust farnar að huga að því hvort þær hafi ráð á að halda keppnina að ári.

Fram hefur komið í fjölmiðlum í Rússlandi að það kosti Rússa minnst 42 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 5,3 milljarða íslenskra króna, að halda keppnina sem er 10 milljónum dala meira en í Serbíu í fyrra.

Ekki hefur fengist gefið upp hvað rússneska stöð 1, sem er að meirihluta í eigu rússneska ríkisins, borgar fyrir sinn hlut í keppninni.

Skipuleggjandi keppninnar segir fullvíst sé að Moskvuborg og rússneska ríkið komi út í mínus og nái ekki peningum til baka með sölu á Eurovision varningi. Talsmaður Samtaka evrópskra sjónvarps- og útvarpsstöðvar í almannaþjónustu staðfestir það. Talmaður rússneska ríkissjónvarpsins segir Rússa hins vegar fá pólitískan velvilja út á keppnina og svo þurfi að horfa til gjaldeyristekna.

Samkvæmt upplýsingum frá Þórhalli Gunnarssyni, dagskrárstjóra Sjónvarps, er áætlaður kostnaður Ríkisútvarpsins vegna þátttöku í keppninni í ár rúmar tuttugu milljónir króna og ætti að vera nálægt því sem hafi verið síðustu ár.

Fjórir starfsmenn Sjónvarpsins eru í Moskvu og tólf manna keppnishópur höfundar sem í eru sminka, fatahönnuður og aðstoðarkona. Samkvæmt upplýsingum frá auglýsingadeild RÚV er áætlað að um fjórtán milljónir fáist fyrir auglýsingar í tengslum við Eurovision keppnina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×