Ríkið gæti sparað rúma hundrað milljarða Höskuldur Kári Schram skrifar 19. júlí 2009 18:30
Samningar hafa tekist við erlenda kröfuhafa gömlu bankanna þriggja. Skilanefnd Kaupþings tekur yfir nýja bankann og þá mun nýr Íslandsbanki taka til starfa á næstu vikum. Kostnaður ríkisins vegna endurreisn bankanna gæti lækkað um rúmlega eitt hundrað milljarða vegna þessa. Formlegar viðræður við kröfuhafa gömlu bankanna hófust í byrjun júnímánaðar en þeim lauk á föstudag. Þá stóð til að ríkið myndi endurfjármagna bankana með 280 milljarða króna framlagi. Þeirri aðgerð var hins vegar frestað fram yfir helgi á meðan gengið yrði endanlega frá samningum við kröfuhafa. Til stendur að kynna niðurstöðuna opinberlega á morgun. Árni Tómasson, formaður skilnefndar Glitnis, staðfesti í samtali við fréttastofu í dag að búið væri að ganga frá samningum við kröfuhafa bankans. Nýr Íslandsbanki tekur til starfa á næstu vikum en samningarnir fela það meðal annars í sér að kröfuhafar geti eignast bankann að hluta eða öllu leyti. Einnig hefur verið gengið frá samkomulagi við kröfuhafa Kaupþings og Landsbankans. Samkvæmt heimildum fréttastofu mun skilanefnd Kaupþings, fyrir hönd kröfuhafa, taka yfir nýja bankann en í hópi kröfuhafa eru meðal annars stórir evrópskir bankar. Með þessu er tryggt að eignir bankans verða ekki seldar á brunaútsölu og verðmæti þeirra þannig hámarkað. Ennfremur þykir það mikill kostur að tengja saman hagsmuni Íslands og þessara erlendu banka. Erfitt er að meta heildaráhrif þessara samninga miðað við þær upplýsingar sem nú liggja fyrir. Viðmælendur fréttastofu telja þó líklegt að þetta opni fyrir lánalínur til landsins og geri það ennfremur að verkum að kostnaður ríkisins vegna enduruppbyggingar bankakerfisins gæti orðið mun lægri. Er talað um rúmlega eitt hundrað milljarða króna í því samhengi.
Mest lesið Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Innlent „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Innlent Dótturdóttir JFK er látin Erlent Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu Innlent Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Innlent „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Innlent Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Innlent Fleiri fréttir Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Börn niður í leikskólaaldur um helmingur þeirra sem slasast „Margir sem því miður eru ekki jafn heppnir og ég“ Sátt við fyrsta árið og taka stöðuna vegna forfalla ráðherra á næstu dögum Tíu létust í umferðinni á árinu og alvarlegustu slysunum fækkar ekki Árangur aðgerða ekki staðist væntingar almennings Enn fleirum sagt upp hjá Árvakri Ríkisstjórnin sek um ósanngjarna mismunun Vonbrigði í menntamálum og áramótasprengja Hafa áhyggjur af frelsissviptingu barna í brottfararstöð Kristrún ræðir við Pétur um borgarstjórnarframboð Níu ráðherrar funda með Höllu Söfnun fyrir Kjartan gengur vel Sjá meira