Dómsmálaráðherra heimsótti sérstakan saksóknara 13. október 2009 15:14
Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra heimsótti embætti sérstaks saksóknara í gær, 12. október 2009. Embættið hefur tekið miklum breytingum á undanförnum vikum, starfsfólki hefur verið fjölgað, þrír nýir saksóknarar skipaðir og starfsemin verið flutt í ný og rúmbetri húsakynni. Fjallað er um heimsóknina á vefsíðu stjórnarráðsins. Þar segir að á fundi ráðherra með Ólafi Þór Haukssyni, sérstökum saksóknara, og starfsmönnum hans kom fram að þar eru 49 mál í rannsókn og reiknar Ólafur með að þeim eigi enn eftir að fjölga til muna. Alls starfa nú 17 manns hjá embættinu, sérfræðingar úr ýmsum greinum. Auk þeirra eru um þessar mundir þrír sérfræðingar frá Noregi að störfum við rannsóknina hér á landi og annað teymi í Frakklandi. Gert er ráð fyrir því að starfsmönnum eigi eftir að fjölga enn frekar og muni hátt í 30 manns starfa að rannsókninni á næstunni. Þá voru skipaðir þrír nýir saksóknarar við embættið hinn 6. október síðastliðinn, þau Arnþrúður Þórarinsdóttir, aðstoðarsaksóknari/sviðsstjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá ríkissaksóknara, og Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, lögfræðingur yfirstjórnar LRH/aðstoðarsaksóknari embættis sérstaks saksóknara. Hólmsteinn Gauti hefur starfað við embættið frá stofnun þess en Arnþrúður og Björn hefja þar störf 15. október næstkomandi. Embætti sérstaks saksóknara hefur tekið upp formlegt samstarf við Serious Fraud Office (SFO), stofnun sem starfar við hlið efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar er rannsakar meiri háttar efnahagsbrot. Fulltrúar frá embættinu hafa einnig fundað með lögreglunni í Lúxemborg og saksóknara efnahagsbrota þar um hugsanlegt samstarf. Þá er embættið í samstarfi við norska efnahagsbrotaembættið auk þess að eiga samskipti við lögreglu- og saksóknarayfirvöld í fleiri nágrannaríkjunum. Embættið var flutt í ný húsakynni fyrir nokkrum vikum, úr Borgartúni 7 á Laugaveg 166. Nýja húsnæðið rúmar mjög vel þá starfsemi sem embættið hefur á hendi.
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Innlent Fleiri fréttir Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Sjá meira