Ördeyða í útboðum í vegagerð á næsta ári 8. október 2009 18:41 Mynd úr safni
Engin stór verkefni í vegagerð verða boðin út á næsta ári. Þá eru allar framkvæmdir, sem nefndar eru í stöðugleikasáttmála, ýmist í uppnámi eða óvissu. Vonir um að eitthvað færi í gang nú í haust hafa brugðist.Alþýðusamband Íslands gagnrýndi ríkisstjórnina í gær fyrir að gera lítið til að auka atvinnu með því að ráðast í stórframkvæmdir í samstarfi við lífeyrissjóðina. Þeir bíða tilbúnir með peningana en talsmaður þeirra undraðist í hádegisfréttum Bylgjunnar hversu hægt gengi hjá stjórnvöldum að koma með verkefni til að vinna. Samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli, sem menn töldu í vor að gæti farið einna fyrst af stað, er í óvissu vegna skipulagsþrætu ríkis og borgar um lóðamál. Orku- og stóriðjuframkvæmdir í Helguvík og við Búðarháls, sem ríkisstjórnin hét að greiða fyrir, eru í uppnámi vegna hennar eigin aðgerða.Í vegagerð er búið að forgangsraða verkefnum í einkaframkvæmd. Breikkun Suðurlandsvegar er fyrst á dagskrá en síðan Vesturlandsvegur og Vaðlaheiðargöng, að sögn Hreins Haraldssonar vegamálastjóra. Það ríkir bara alger óvissa um hvenær, þar sem þetta er bundið því að taka þurfi upp veggjöld, til að endurgreiða lán sem lífeyrissjóðir veita í framkvæmdirnar.Mesta framkvæmdafé fjárlaga hefur verið á sviði vegagerðar en þau verkefni, sem þegar eru í gangi, eins og tvenn jarðgöng, þurrka að mestu upp þá níu milljarða króna, sem áformaðir eru á næsta ári. Því verður ekki rými fyrir nein ný stærri útboð á næsta ári, að sögn vegamálastjóra.
Mest lesið „Stundin sem við höfum óttast er runnin upp“ Erlent Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Innlent Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Innlent Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Innlent Háhyrning rak á land í Grafarvogi Innlent Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ Innlent „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Innlent Segir Ísland stunda hvítþvott í svörum til SÞ Innlent Musk sér eftir sumum færslunum sem hann birti um Trump Erlent Fannst látinn í hlíðum Esjunnar Innlent Fleiri fréttir Olíudreifing sýknuð af tug milljóna króna bótakröfu Costco Segir Ísland stunda hvítþvott í svörum til SÞ Aðalmeðferð hafin í máli Sigurðar Fannars Tók smá snúning en aftur kominn á svipaðar slóðir Neitaði að borga fyrir leigubílinn og braut rúðu í lögreglubíl Hnattræn hlýnun gerði hitabylgjuna í maí hlýrri og mun líklegri en ella Háhyrning rak á land í Grafarvogi Reisa tuttugu bekki til minningar um Bryndísi Klöru Tilfinningaþrungin ræða á þingi SÞ: „Stolt, fötluð, og óendanlega þakklát“ „Hjólið fellur á flugi, auðvitað er það alvarlegt“ Þrjú ár fyrir að svíkja út 156 milljónir og leggja inn á fjölskylduna Endósamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum Grunur um að nefhjól úr flugvél hafi lent á Austurvelli „Fráleitt“ að halda að ríkisstjórnin bakki með veiðigjaldafrumvarpið Fannst látinn í hlíðum Esjunnar „Ert eiginlega hættur að finna lögreglumenn á samfélagsmiðlum“ Maðurinn á Esjunni er fundinn Ágúst Ólafur aðstoðar borgarstjóra Eldur í bílskúr á Álftanesi Nafn mannsins sem drukknaði við Örfirisey Persónuvernd lagði Landlækni en sektin milduð Rannsókn banaslyss í Brúará miði vel Guðrún spyr um há laun æðstu ráðamanna Fullyrðing um slaufun verknámsskóla „kolröng“ Rafmagn komið á aftur VG skoðar samstarf við aðra flokka fyrir kosningar næsta vor Grunur um íkveikju á Hjarðarhaga Mættu heim til lögreglumanns og ógnuðu honum með hníf Orri Harðarson er allur Látinn eftir líkamsárás en árásarmaðurinn gengur laus Sjá meira