Innlent

Missti stjórn á bíl og hafnaði á grindverki

Ökumaður slapp ómeiddur þegar hann missti stjórn á bíl sínum á Hringbrautinni í Reykjavík um tvöleytið í nótt og lenti á grindverki á milli akbrautanna, rétt austan við Umferðarmiðstöðina.

Grindverkið brotnaði niður á nokkrum kafla og bíllinn skemmdist talsvert en svo vel vildi til að enginn annar var þarna á ferð þegar óhappið varð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×