Friðlýsingin sögð á skjön við Natóaðild 16. maí 2009 07:00 Friðlýsing landsins fyrir kjarnorkuvopnum gæti haft áhrif á komu herskipa Atlantshafsbandalagsins, þar sem ekki er venja að gefa upp hvaða skip eru búin slíkum vopnum og hver ekki.fréttablaðið/ÞÖK
Í stjórnarsáttmálanum er kveðið á um að Ísland verði friðlýst fyrir kjarnorkuvopnum. Tillaga um slíkt hefur oftsinnis verið lögð fram á þingi en aldrei hlotið nægan stuðning. Samkvæmt áliti lögfræðingsins Bjarna Más Magnússonar stangast friðlýsing Íslands fyrir kjarnorku og umferð kjarnorkuknúinna farartækja á við skuldbindingar Íslands við aðild að Atlantshafsbandalaginu. Bandalagið hefur haft þá stefnu að gefa ekki upp hvort farartæki þess séu búin kjarnavopnum eður ei. Árni Þór Sigurðsson er formaður utanríkismálanefndar. Árni segir að NATO verði að svara því sjálft hvort þetta hafi áhrif á veru Íslendinga í bandalaginu. Hann segist ganga út frá því að stjórnvöld sem sendi hingað herskip eða flugvélar verði að gefa út yfirlýsingar um að þau séu ekki búin kjarnorkuvopnum. Árið 1984 lýsti ríkisstjórn Nýja-Sjálands yfir sams konar friðlýsingu landsins. Í kjölfarið slitu Bandaríkjamenn varnarsamstarfi við landið, sem nefnt var ANZUS. Árni Þór segir að ríkisstjórnin hljóti að fara í saumana á því hvaða afleiðingar slík yfirlýsing hér á landi hefði. Þingsályktunartillaga um friðlýsingu hefur níu sinnum verið lögð fram, fyrst árið 1987, en aldrei fengist afgreidd. Á síðasta þingi lögðu þingmenn allra flokka, utan Sjálfstæðisflokks, fram slíka tillögu. Samtök hernaðarandstæðinga hafa á undförnum árum sent sveitarfélögum erindi um friðlýsingu og nú er svo komið að einungis fimm sveitarfélög hafa ekki samþykkt friðlýsingu. Þau eru: Grímsnes- og Grafningshreppur, Skútustaðahreppur, Reykjanesbær, Sandgerði og Vogar. Ákvæðum um friðlýsingu hefur þó ekki verið beitt gegn herskipum sem hingað til lands hafa komið.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Erlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Fleiri fréttir Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Sjá meira