Innlent

Rauði Krossinn fær mannréttindaverðlaun

Á myndinni eru fulltrúar í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar, Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri,Marta Guðjónsdóttir formaður mannréttindaráðs,Ahn Dao Tran og Sólveig Ólafsdóttir sem veittu verðlaunum viðtöku ogHanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri.

Rauði Krossinn hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar í dag en þau eru veitt þeim einstaklingum, félagssamtökum eða stofnunum sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um mannréttindi tiltekinna hópa.

Í tilkynningu frá borginni segir að Rauði Krossinn standi vörð um mannréttindi, heilbrigði og virðingu einstaklinga og bregst við neyð jafnt innanlands sem utan.

Reykjavíkurborg hefur unnið að ýmis konar samstarfsverkefnum með hreyfingunni svo semí rekstri Konukots, móttöku kólumbískra flóttamanna, rekstri hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar o.fl. RKÍ hefur jafnframt sýnt og sannað á liðnum mánuðum hversu vel og örugglega þeim hefur tekist að sveigja starfsemi sína að breytingum í samfélaginu.

Það var Hanna Birna Kristjánsdótti borgarstjóri afhenti verðlaunin. Ahno Dao Tran, stjórnarmaður Rauða krossins og Sólveigu Ólafsdóttur tóku við verðlaununum í Höfa í morgun.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×