Innlent

Rútan komin í leitirnar

Rútan er fundin.
Rútan er fundin.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann rútu sem var stolið upp á Höfða í nótt. Rútan fannst um hádegisbilið skammt frá fyrirtækinu þar sem henni var upprunalega stolið.

Rútan var yfirgefin og ekkert þýfi var að finna inn í henni. Þjófarnir létu greipar sópa í höfuðstöðvum fyrirtækisins auk þess sem þeir stálu 50 manna rútu.

Varðstjóri segir að það hafi bæði verið ábendingar og vökul augu lögreglumanna sem varð til þess að rútan fannst.

Í fyrstu var talið að tveimur rútum hefði verið stolið, en að sögn varðstjóra þá reyndist hvarf hinnar rútunnar eiga sér eðlilegar skýringar.

Þjófanna er enn leitað.


Tengdar fréttir

Stálu rútu í nótt

Lögreglan leitar nú að 51 manna hvítri Scania rútu sem var stolið í nótt frá fyrirtækinu Bílar og Fólk. Fyrirtækið er með aðsetur á Krókhálsi en þangað brutu þjófar sér leið inn í nótt og stálu margvísislegum hlutum og svo heilli farþegarútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×