Innlent

Eldri borgarar miðla börnum

Rauði krossinn stendur í samvinnu við Öldrunar­ráð Íslands og félagsráðgjafadeild Háskóla Íslands fyrir óvenjulegum sumar­námskeiðum fyrir börn með afar fjölbreyttri dagskrá undir yfirskriftinni Gleðidagar - ungur nemur, gamall temur.

Eldri borgarar munu leiðbeina og ráða sjálfir hverju þeir miðla til barnanna, samkvæmt tilkynningu frá Rauða krossinum. Sem dæmi um námskeið má nefna gamla leiki, hnútabindingar, handavinnu eða sögur. Hugarflug og kunnátta þeirra eldri ræður för.- ghs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×