Lífið

Unnur Birna gerist söngkona

Stóð sig eins og hetja Unnur Birna ásamt Sigrúnu Gylfadóttur en Unnur Birna sýndi og sannaði að hún fær í flestan sjó, líka söng.
Stóð sig eins og hetja Unnur Birna ásamt Sigrúnu Gylfadóttur en Unnur Birna sýndi og sannaði að hún fær í flestan sjó, líka söng.

„Við vissum að bæði Stefán Karl Stefánsson og Laddi væru hörkusöngvarar og að Stefán Hallur gæti alveg haldið lagi. En Unnur Birna kom okkur alveg skemmtilega á óvart,“ segir Þorsteinn Gunnar Bjarnason, leikstjóri kvikmyndarinnar Jóhannes.

Leikarahópnum var nýlega smalað í hljóðver til að taka upp titillag myndarinnar. Lagið er eftir Vidda í Greifunum sem sér jafnframt um alla tónlist myndarinnar. Þorsteinn veit ekki til þess að þetta hafi verið gert áður, að leikarar syngi titillagið sjálfir. „Ég fékk bara þessa hugmynd og það leist öllum svo vel á hana, svona hefur stemningin líka bara verið á tökustað, allir hafa bara verið í góðum fíling og tilbúnir að gera nánast allt.“

Það vekur kannski helst athygli að Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, fyrrum alheimsfegurðardrottning og kynnir í Bandinu hans Bubba, skuli þarna þreyta frumraun sína fyrir framan hljóðnemann. Þorsteinn segir að hún hafi staðið sig eins og hetja.

„Hún vissi sjálf ekkert hvort hún gæti sungið, ég sagði henni að það væri hægt bjarga nánast öllu í hljóðveri. En svo söng hún bara eins og engill,“ segir Þorsteinn sem lýsir laginu sem svona „feelgood“-slagara. Sem sé í anda myndarinnar. Á ýmsu hefur samt gengið við gerð kvikmyndarinnar og Fréttablaðið greindi frá því þegar slagsmálasenur fóru aðeins úr böndunum við Kaldársel í Hafnarfirði með þeim afleiðingum að Laddi sjálfur var allur blár og marinn en Stefán Hallur fékk skurð á hausinn eftir að nafni hans mölvaði blómapott á höfði hans.- fgg


Tengdar fréttir

Logi Geirs og Bjöggi láta gott af sér leiða

„Ég rakst á frétt á netinu um Alexöndru Líf og hún snerti mig mjög mikið. Þetta er fjölskylda sem hefur þurft að þola ansi mikið og þarf á stuðningi að halda," segir Björgvin Páll Gústavsson, markvörður íslenska landsliðsins í handbolta og ein af silfurhetjunum. Hann og Logi Geirsson hafa ákveðið að gefa Alexöndru Líf áritaða Silver-landsliðstreyju með áritunum frá öllum leikmönnum handboltalandsliðsins. Þá hafa þeir keypt tíu miða á styrktartónleika Alexöndru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.