Metin slegin í humarveiðum 30. nóvember 2009 19:04
Skipverjarnir á Fróða öðrum í Þorlákshöfn settu í dag Íslandsmet í humarveiðum þegar afli skipsins á árinu fór yfir hundrað tonn. Skipsstjórinn segir koma á óvart hversu mikið veiðist nú af humri við landið.Skipverjarnir níu komu að landi í Þorlákshöfn laust fyrir hádegi með yfir tvö tonn af humri sem þeir fengu á skömmum tíma á Breiðamerkurdýpi. Fullyrt er að með þessum afla í dag sé Fróði annar búinn að veiða meira af humri en dæmi eru um hjá einu skipi á Íslandsmiðum.Alexander Hallgrímsson skipstjóri segir metið felast í því að hafa veitt 103,5 tonn af humarhölum frá því í byrjun apríl, - á átta mánuðum. Vel hafi veiðst alla vertíðina frá því í vor og búinn að vera mikill humar á miðunum, allt frá Hornafirði og vestur fyrir Snæfellsjökul.Spurður hvort þetta sé góðæri í lífríkinu að þakka eða því að þeir séu svo duglegir veiðimenn segist Alexander vera á mjög öflugum bát með tveimur trollum. Sennilega hafi þó humarstofninn stækkað og það hafi komið sérstaklega á óvart hversu vel veiddist nú á haustmánuðum.Humarinn fór beina leið í vinnsluna hjá Ramma í Þorlákshöfn þar sem 36 starfsmenn sjá um að gera hann svo kræsilegan að sælkerar fá vatn í munninn, en kaupendur í þessu tilviki eru aðallega á Spáni. Öllum var boðið til pizzaveislu í hádeginu því vinnslan var líka að slá eigið met, 200 tonn af humarhölum komin í hús á árinu. Ásgeir Jónsson, verkstjóri hjá Ramma, segir þetta umtalsvert meira en nokkurntíma hafi verið unnið í húsinu áður.Þegar reynslumesta fiskverkakonan, Ragnheiður Hallgrímsdóttir, var spurð hvort þær græddu eitthvað meira á því þegar svona mikið kæmi inn í vinnsluna kvað hún svo ekki vera. Þau væru bara á sínum verkamannalaunum.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Sjá meira