Breytt skattlagning lífeyris ofmetin leið 16. október 2009 03:15 Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hafnar ekki hugmyndum Sjálfstæðisflokksins um kerfisbreytingu á skattlagningu lífeyris en setur fyrirvara á hversu raunhæfar þær eru. Upphæðirnar sem settar eru fram í tillögunum séu háar og „barbabrellulegt að halda því fram“ að þessi leið geti komið í stað allra skattahækkana. Það sé óraunhæft að það sé hægt að ná slíkum bata í afkomu ríkissjóðs með þeim hætti sem boðað er. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram þingsályktunartillögu um þær bráðaaðgerðir sem flokkurinn telur nauðsynlegar til að bregðast við efnahagsvanda þjóðarinnar. Ein þeirra fjallar um skattlagningu inngreiðslna í lífeyrissjóði í stað útgreiðslna. Með slíkri breytingu telur Sjálfstæðisflokkurinn að megi auka tekjur ríkissjóðs um 35 til 40 milljarða á ári, sem gæti komið í stað þeirrar skattlagningar sem ríkisstjórnin hefur boðað. Steingrímur segir að helst verði sjálfstæðismönnum hrósað fyrir að leggja hugmyndina fram með þeim hætti að útfærsla hennar sé opin. Í vor hafi sama hugmynd verið kynnt með þeim hætti að bylta þyrfti lífeyriskerfinu og hann hefði varað við því. Þeirri hugmynd hefði verið fálega tekið „svo vægt sé til orða tekið“, segir Steingrímur. „Þeir leggja einnig til að skoða séreignarsparnaðinn sérstaklega og það finnst mér sjálfsagt að gera. Það væri því háð að um það væri sæmilegur friður og skynsemi væri í slíkri útfærslu,“ segir Steingrímur. Umrædd leið felst í að fresta skattlagningu séreignarsparnaðar sem myndi skila 115 milljarða eingreiðslu í ríkissjóð strax á næsta ári og þrettán milljörðum árlega eftir það. En kemur til greina að halda inni boðuðum niðurskurði og skattahækkunum og fóstra hugmynd sjálfstæðismanna um breytta skattlagningu séreignarsparnaðarins? Væri þá ekki búið að loka með einu pennastriki títtnefndu fjárlagagati sem á að loka á þremur árum og verður sársaukafullt fyrir alla landsmenn? „Þegar rýnt er betur í þetta þá held ég að þetta sé ekki svona einfalt. Þá værum við bara að taka risastórt lán í framtíðinni. Það verður líka að hafa í huga að féð er bundið. Vörsluaðilar séreignarsparnaðar reiða ekki fram 115 milljarða króna rétt si svona.“ svavar@frettabladid.is
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira