Sjálfstæðisflokkur er í sókn á landsvísu 16. október 2009 06:00 Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. MYND/Vilhelm
Sjálfstæðisflokkurinn myndi bæta við sig sex þingmönnum yrðu niðurstöður kosninga í takt við nýja könnun Fréttablaðsins sem gerð var í gærkvöldi. Vinstri grænir og Borgarahreyfingin myndu tapa þingmönnum. Ríkisstjórnarflokkarnir eru með nauman meirihluta þingmanna samkvæmt könnuninni, 32 af 63. Samanlagt fylgi Samfylkingarinnar og Vinstri grænna mælist 50 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn styrkir stöðu sína frá síðustu könnun, og mælist nú með 34,7 prósenta fylgi. Flokkurinn mældist með 30,4 prósenta fylgi í könnun Fréttablaðsins sem gerð var 28. júlí, og fékk 23,7 prósent í síðustu kosningum. Yrðu niðurstöður kosninga í takt við könnun Fréttablaðsins fengi flokkurinn 22 þingmenn, en er með 16 þingmenn nú. Litlar breytingar mælast á stuðningi við Samfylkinguna frá síðustu könnun Fréttablaðsins. Flokkurinn fengi stuðning 30,8 prósenta kjósenda yrði kosið nú, en naut stuðnings 29 prósenta í síðustu könnun. Flokkurinn fékk 29,8 prósent atkvæða í kosningunum í vor. Samfylkingin myndi miðað við þessa niðurstöðu halda óbreyttum fjölda þingmanna, og ná 20 mönnum á þing. Vinstri græn mælast með svipað fylgi og í síðustu könnun, fengju 19,2 prósent nú en mældust með 18,8 prósent í könnun í lok júlí. Það er nokkuð frá 21,7 prósenta kjörfylgi. Flokkurinn fengi 12 þingmenn kjörna yrðu þetta niðurstöður kosninga, en er með 14 í dag. Framsóknarflokkurinn bætir örlítið við fylgi sitt frá síðustu kosningum, en hefur enn ekki náð kjörfylgi. Flokkurinn mælist með 14,1 prósenta fylgi í nýrri könnun Fréttablaðsins, en 13,5 prósent í síðustu könnun. Framsóknarmenn fengu 14,8 prósenta fylgi í kosningunum í vor. Flokkurinn fengi óbreyttan fjölda þingmanna, níu talsins. Borgarahreyfingin mælist með stuðning 0,8 prósent þeirra sem tóku þátt í könnun Fréttablaðsins, en mældist með 8,2 prósent í síðustu könnun, einu prósentustigi yfir kjörfylgi. Flokkurinn fékk fjóra þingmenn í kosningum, en engan miðað við nýja könnun. Hreyfingin mælist með 0,4 prósenta fylgi, en munur á fylgi Hreyfingarinnar og Borgarahreyfingarinnar er innan skekkjumarka. Hringt var í 800 manns fimmtudaginn 15. október. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu. Spurt var; Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga nú? Alls tóku 64,4 prósent afstöðu til spurningarinnar. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira