Stendur Partývakt Bylgjunnar í hjólhýsi - myndir 18. júlí 2009 19:59 Ásgeir Páll kominn í stellingarnar fyrir Partývaktina Mynd/ Kiddý Thor
Útvarpsmaðurinn hláturmildi Ásgeir Páll Ágústsson mun senda partívakt Bylgjunnar út úr hjólhýsi á tjaldstæðinu á Flúðum í kvöld. Ásgeir er í raun að senda útvarpsþáttinn út heimanfrá sér þar sem hann er að eigin sögn „Trailertrash par exelance". „Bylgjan er búin að vera á ferðalagi í allt sumar en ég er alltaf skilinn útundan. Einn eftir í Reykjavík. Svo vildi þannig til að ég var boðinn í fimmtugsafmæli um helgina hérna á Flúðum," segir Ásgeir sem sá fram á að þurfa að sleppa afmælinu þar sem Partývaktin er frá 22-03 öll laugardagskvöld. Ásgeir dó þó ekki ráðalaus þar sem hann fékk þá hugmynd að senda partývaktina út frá Flúðum - úr hjólhýsinu. Tæknimenn Bylgjunnar fóru því á fullt til að gera þetta mögulegt og afraksturinn heyrum við á Bylgjunni í kvöld. Það sem færri þó vita er að Ásgeir Páll býr í hjólhýsi. „Ég er búsettur í Austurríki á veturna en hef verið hjá tengdaforeldrum mínum á sumrin. Nú var sá möguleiki ekki lengur fyrir hendi þar sem allt var uppbókað hjá þeim þannig að við hjónin ákváðum að búa í hjólhýsinu. Við erum því nokkurs konar „trailertrash par exelance"," segir hann og hlær. Partývaktin verður send út á tjaldstæði en óttast Ásgeir ekkert að fullir vitleysingar í útilegu fari að angra hann í útsendingunni? „Nei ég á svo sterka konu. Hún er mikið hraustmenni og lemur þá sem hætta sér nærri hjólhýsinu," segir hann kátur og bætir við: „Svo verð með tvo mjög hrausta og blindfulla dyraverði til öryggis." Hægt er að hlusta á partývaktina þegar húm hefst klukkan 22 með því að smella hér.Rúnar Friðriksson stendur vaktina í dyrunum í kvöld. Hvort hann verði blindfullur er allsendis óvíst.
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Fleiri fréttir Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Sjá meira